Thursday, December 29, 2005




í gærmorgun fór ég með bílinn minn í viðgerð eldsnemma klukkan 8 en enginn gat komið með mér og keyrt mig þannig heim, ég tók leigubíl en ég hafði beðið systur mína en hún svaraði því ekki, svo ég bað hana ekki aftur en klukkan hálf3 um daginn vissi ég að bíllinn yrði ekki tilbúinn þann daginn og hringdi í systur mína að biðja hana um að keyra mig í vinnuna klhálf4 en þá var hún að keyra mömmu okkar heim úr vinnunni, sagðist vera að renna inní hafnarfjörð en ég spurði hvort hún gæti komið svo og náð í mig en hún sagðist vera í pásu frá sinni vinnu, hádegispásu en ég bragst ókvæða við, sagði: aldrei er hægt að gera mér greiða þegar ég bið um en hún sagði mér að hringja í bróður okkar en ég sagði að hann væri í hafnarfirði en hún sagði mér að hringja í pabba okkar, ókey, nei, hann er í vinnunni, sagði ég, hún sagði mér að hringja í minn fyrrverandi mann, nei aldrei, en taka leigubíl gat ég ekki átti ekki fyrir því en ég varð brjáluð, systir mín ömurleg lásí leiðinleg aldrei hægt að gera neitt fyrir mig en ég er ekki búin að hringja aftur í hana en hún hringdi eitthvað í mig 2 mínútum eftir samtalið að reyna að róa mig en það tókst ekki, bauðst tilað borga inná mig, osfrv osfrv, ég hringi ekki í systur mína í bráð en mamma segir að við megum ekki gera lífinu það að vera ósáttar






Tuesday, December 27, 2005


systir mín segir að hún sé skrímsli sem gott sé að elska, að hún búi í helli sem notalegt sé að vera í, að ástin hennar sé prinsessa, að prinsessan sé ekki fangi skrímslisins en að skrímslið sé fangi afþví það sé skrímsli, að öll skrímsli séu fangar, það sé ekki beinlínis auðvelt fyrir skrímsli að labba eftir götu með sitt langa skott og sinn stóra munn sem allt í einu spúi eldi, það sé erfitt að hafa stjórn á eldinum en hún sé þá bara meira inní sínum helli, að horfa á eldinn sem hún kveiki stundum uppí, og á prinsessuna dansa, og skuggana af dansi prinsessunnar, skrímslið sofni við flöktið í þeim sem eru svo svæfandi fyrir augnlokin, skrímsli eru með þung augnlok sem erfitt sé að halda opnum, skrímslið hún systir mín, ef hún fer í kringluna í dag mun kannski kringlan brotna undan þunga hennar, ef hún fer niður laugaveginn mölvast nokkur hús, svo hún heldur sér bara inni þótt hún sé svöng og dreymi um að steikja fisk á teini á eldinum sínum, fiskamatur hefur góð áhrif á skrímsli, þau róast og eru ekki nærri því eins uppivöðslusöm á eftir, skrímslið hún systir mín, þegar við vorum litlar var ég meira skrímsli en hún ef ég á að segja, alveg einsog er en nú er hún einhverra hluta vegna orðin meira skrímsli en ég, þetta er víst eitthvað sálfræðilegt atriði með systur, skrímslasystur sem skiptast á um að vera meira skrímsli en hin, svo veit ég ekki meir








systir mín gaf mér teketil í jólagjöf, hún segist ætla að taka hann tilbaka ef ég noti hann ekki, hún gaf mér líka telauf, tepoka og hunang, hún gaf einnig dætrum mínum skemmtilegar og áhugaverðar gjafir

ég var í svo fallegu pilsi um jólin og aðdáuninni rigndi yfir mig, allir elskuðu pilsið og mest mig

ég nenni ekki að lesa þessa dagana, fékk mary higgins clark lánaða í gær, í von um að ég gæti kannski lesið hana, en ég er í óverðskuldugu fríi frá íslenskum fagurbókmenntum, því miður, hvað er að mér

systir mín segir að ef hún ætti eiginmann mundi hún ekki fara fram á minna en hálfa milljón króna jólagjöf, pabbi gaf mömmu mjög falleg leðurstígvél

hún segir líka að allar mæður séu hafnar yfir gagnrýni

hún segir að ég og mamma séu verðlaunahafar í móðurhlutverkinu á heimsmælikvarða sem mæður

nú hefur ekki rignt í 2 klukkustundir samfleytt og eyrun hafa ekki enn vanist því að heyra ekki í regninu sem hefur runnið stanslaust úr skýjunum í 4 daga

smá pása






Tuesday, December 20, 2005



systir mín sagði að bróðir okkar hefði beðið hana um að segja mér að hringja í hann og ég hringdi og hann sagðist aldrei hafa beðið systur okkar um þessi skilaboð, úff, stælarnir







blinded by the chrismas light

jólaklukkurnar klingja frá nærliggjandi kirkju rétt í þessu

mér finnst sem herramaður sé að bjóða mér upp, hann er í svörtum fötum og jakkalafið er margra metra langt svo langt að það sér ekki fyrir enda þess
svo er hann með svarta hanska og þegar hann tekur þá af sér er hann býður dömunni uppí dans eru hendur hans veiklulegar, fölar nærri því bláar og með rauðbrúnu naglalakki og skreyttur er hann hring með fallegum steini, hann hneigir sig djúpt og virðulega, í augunum hans glitrar eitthvað sem líkist demanti og þegar hann opnar munninn er röddin úr flaueli og orðin úr gulli, þau eru einosg tunga sem sleikir hjartað mitt svo mjúk og falleg og nú býður hann mér upp, takk herra, segi ég og stíg í dansinn, við dönsum, ég er einsog kontrabassi í fangi hans nema liðugri og hann er einsog eðla sem heldur utan um mig nema ekki fötin hans eru úr hrjúfu flaueli, i love to dance with you, segi ég og lygni aftur augunum í fangi hans og hann segir, ég ætla að gefa þér fallegstu eyrnalokkana sem til eru í færeyjum, svo lokum við augunum, afþví við erum bæði gráti nær, og þá er betra að hætta að dansa, við hneigjum okkur hvert fyrir öðru, einosg prinsar og prinsessur gera á hallardansleik, og göngum sitt í hvora áttina, no harm done, no hard feelings, bara pínulítil nál í hjartanu sem finnst ekki


æargggggaææææægaeeeg svo kemur skrímsli inní höllina, tekur upp dansherrann minn í lúkuna og gleypir hann og annað skrímsli, vinarskrímsli hins, kemur hinum meginn að, grípur mig í lúkuna og gleypir mig lsdjfskdfwefsæææaæææsdæfwefaææ öskra skrímslin uppyfir sig að fara að gleypa fleiri sem þarna eru staddir í ímyndun minni dslfjaWLEFASDÆASDFJCVV

arg arg garg arg ælkjdflækasdjfwðefjsadvv


annað skrímslið er að draga í sér jakkalafið einosg langan lakkrís ú hvað það er endalaust langt þetta jakkalafur

nú dönsum við í mögum sitthvorra skrímslanna
það er bara fínt
það er bara stórfínt


argggsdgajskdgwegegasævgsjvkææææææ sdjweifjasdlkvasjkævj


ég sendi landsmönnum bestu kveðjur með laginu blinded by the chrismaslight, best að fara útí búð núna og sjoppa, ég e l s k a að kaupa











ég ætla sko ekki að stressa mig á jólunum, ég hef ekkert bakað og kannski mun ég ekkert baka, ég er í jólagjafainnkaupum, það er kapítuli útaf fyrir sig sem ég elska elska elska kaupa kaupa kaupa verst að ég er að reyna að lifa kreditkortslausu lífi, við systurnar, en hún er þó farin að nota sitt - rosalega mikið, úr gulli, en ég ætla sko ekki að stressa mig, olræt










margir í fjölskyldu minni eru með kaupæði ég þ.á.m. sem þýðir að við elskum að kaupa og verðum betri manneskjur af því að fara útí búð og versla, koma þaðan með eitthvað sem við höfum sett í töskuna eða pokann, og elskum að borga fyrir vörurnar fullum fetum, elskum að eiga í samskiptum við kaupmann, elskum að koma heim með dót svo nú er góssentíð fyrir mig og fleiri í fjölskyldu minni

fyrrverandi bóndi minn var líka svona og þess vegna áttum við svo vel saman á tímabili
systir mín þarf ekki annað að hlaupa útí búð og kaupa flatkökur og hún eflist við það lífsþrótti, það er líka gaman að kaupa á netinu, segir hún, eiginlega hrein unun, því við það bætist þrillið sem kemur þegar við fáum p a k k a

ástin er alls staðar líka í pökkum i love everything







ég er að fara með bílinn í skoðun, í gær hringdi ég kl. 3 í mömmu, við töluðum eitthvað saman, kom í ljós mörgum tímum síðar kl. 8 að við höfðum verið staddar báðar í smáranum, í sitthvorri búðinni, hlið við hlið, svona erum við jafnan nálægt hvert öðru alltaf í verslunarmiðstöðum án þess að vita af því, ég er komin með nýjan síma, hátalarinn var bilaður í hinum, enda get ég ekki verið með bilaðan síma útaf andlegu platónsku ástarævintýrunum (1) sem ég á í vændum á næsta ári, sá fyrrverandi bóndi minn keypti fyrir mig símann en ég borga honum mánaðarlega fyrir, eldri dóttir mín er forkunnar dugleg stúlka, hún vinnur í tveimur vinnum plúss að vera í skóla, ég er stolt af henni, og líka yngri dóttur minni sem er svo mikill ljúflingur, yngst og best, einsog mamma segir því hún er yngst sinna systkina, svo eru þær báðar bestar dæturnar mínar, ég er komin í gott jólastuð, ég elska að fara í búðir, bróðir minn kallaði systur okkar kellingu í gær, ég efast um að hún gleymi því fljótt, þó hún þykist vera kristni trúa og halda fyrirgefninguna sem hið besta manifesto leynist í henni lúmskur fjandi langrækninnar, aumingja hún, aumingja hinir sem að kalla systur mína kellingu, því þegar það gerðist eitt sinn að hún gekk útúr bíl (rústrauðum saab 99)á bílastæði fyrir framan sjoppu í mosfellsbæ á sólskinsdegi í ágústmánuði, nýkomin úr fjallgöngutúr uppá esjuna með ástkonu sinni og þeirra vinkonu sem alin var upp í eastgermany, var hún klædd í skyrtu með bindi - þannig fer maður í göngutúr uppá esju, einnig í fjallgönguskóm - og var að reykja vindil, þá voru þarna strákar í bíl, strákar úr mosó, einn sagði: "sjáiði strákar, þarna fer kelling með vindil og bindi,*" - auðvitað heyrði systir mín að í setningunni var stórkostlegt innrím og kannski var það þess vegna sem hún varð æfa reið, hún vildi ekki vera kveikjan að og efniviður stórkostlegs innríms, systir mín snarstoppaði, púaði frá sér vindlareyk, haltraði að bílnum, fór að rífast einsog hundur og köttur, greip um ís stráksa, sá var að borða ís í brauðformi, þegar strákurinn var kominn uppúr bílnum og grýtti ísnum hans í stéttinna,** loftið var eldfimt á bílaplaninu svo ummunaði að yrðu handalögmál en af tillitsemi að stríðsaðilinn hinn var kelling stilltu piltarnir sig, eða einn í hópnum sko dró ís lausa strákinn aftur inní bílinn, svona fór það, ísinn í stéttina, systir mín sagði við bróður okkar í gærkvöldi: "þú ert bróðir minn, þú kallar ekki systur þína kellingu", en ég held kannski hún láti þessa fallegu órímuðu setningu nægja, hún sagði hana svo einlægt og fallega, ástúðlega, hjartnæmlega, gefandi bróður okkar sjens á að breyta virðingarlausa munnsöfnuðinum - en ég spyr: hvað felst á bakvið munnsöfnuðinn, hvers vegna kallar bróðir minn systur okkar kellingu?



*look at this guys, here comes a lady with a cigar and a tie

**þá sagði strákurinn með sorgartóni, pínupons vælu-: konan eyðilagði ísinn minn


ath. mundi kelling sem er kristni trúar og trúir á fyrirgefninguna sem sitt helsta manifesto bregðast svona við á bílastæði fyrir framan sjoppu? svari hver fyrir sig


(1) á næsta ári hef ég ákveðið að helga mig platónskri ást eða þangað til ég hef ferðast til afríku, ég get ekki látið tilfinningarnar stöðva mig, og ég vil ekki fá karlmann inná heimilið, ég tek því rólega og læt aðra um að halda amori við á næstu mánuðum, ég hef líka áhuga á að upphefja ástina á hærra plan, og kynnast karlmönnum sem vinum, sem tigna saman vináttuna fremur en að fagna erosi á jafn væminn hátt og tíðkast, í bili það er að segja, þarað auki sem mér finnst þetta allt saman ofur dónalegt og hræðilega hallærislegt, svona ástarsambönd, nú á tímum, þegar fuglaflensan er í startholunum og ástandið í heiminum er einsog það nú er vægast sagt

p.s. systir mín var að segja mér að sýfilis væri komin aftur í umferð alla vega í bretlandi

sýfilis er hjartnæmur sjúkdómur





















Sunday, December 18, 2005



dætur mínar koma mér á óvart, sú eldri fór á bakvið mig og mér sárnaði en amma hennar sagði við mig, dóttur sína, að það væri í náttúru fólks að fara á bakvið foreldra sína, og þó ég heyrði þetta sagt við mig af konunni sem ég fór einhvern tímann á bakvið, kannski nokkrum sinnum, þegar ég var á sama aldri og dóttir mín, ræð ég ekki við sárindin sem ég verð fyrir, systir minni þykir þetta heldur ekkert mál og ofureðlilegt, að eldri dóttir mín skyldi ekki segja mér frá demantinum sem hún setti í naflann, og ég sakna þess að fá engan hljómgrunn fyrir gremjuna í sjálfri mér, mamma er hafin yfir allt, og systir mín tekur ekki uppeldismál alvarlega, ég veit ekki hvernig barnið hennar væri ef hún ætti barn, en kannski hefði hún það fast í snúru, hún hefur a.m.k. sagt að hún mundi ekki senda það í skóla heldur kenna því sjálf, æj, ég veit það ekki, ég er hálf spæld, ég fór út að skemmta mér í gær og sá engan fallegan strák neins staðar, eða karlmann, svo fegurðarskyn mitt er líka vansvefta, ég er dálítil strákaflenna, ég sakna stráka, kannski ég ætti að eignast strákavin, en hvað gerir maður með strákavini sínum? situr á kaffihúsi og ræður um börnin sín og stjórnmál? ef ég væri óvirkur alki gæti ég átt strákavin í búningi trúnaðarmanns og við hist á kaffihús og talað um alkahól og alkahólisma og skipst á góðum ráðum, og talað um tiltektir og IKEA, en ef maður er ekki alki er minni möguleiki á að eiga strákavin ef maður er fjörtíu ára kona, æj, ég er að rugla, ég ætla að taka asperin og leggjast í sófann og horfa á popppunktinn

- systir mín var óþolandi í símanum í dag
- hún ætlar að gefa pabba disk með roger miller og mér disk með kate bush
- ég vorkenni henni að vera svona leiðinleg
- líklega eru dætur mínar skemmtilegri en ég
- rokkland er frábær þáttur, ólipalli er æði









Friday, December 16, 2005




við systurnar erum sammála um að rítalín sé ekki gott fyrir krakka

lýsi er betra og fiskur að borða, ekki kjöt, heldur fiskur og grænmeti
og bara lífræn ab mjólk á morgnanna og þá ekki meira af mjólkurvöru þann daginn
loksins erum við sammála um eitthvað, úff, hvað það er nú gott

geðlæknum þykir gaman að skrifa lyfseðla





once upon a time there was a stewardess who loved a teddy bear, and the teddy bear loved her, and followed her everywhere, in her stewardess bag, and the teddy bear had then travelled a lot, the teddy bear was very proud of the stewardess legs, and her beautiful small ears which the bear loved to touch with the mouth when they were lying down on the bed´s pillows of the cabin´s hotel in each and every city they went to. and the shoes the stewardess had did also love her. the shoes were red as were her dress and the scarf wich also followed her everywhere, oh it was not a lonely person who had a teddy bear, scarf and shoes following her everywhere, and those beautifull red painted nails, oh, how adorable the nails. she was happy and well surrounded be love and adoration. she lied down her head down on the pillows and the teddy bear touched her ear with the mouth and wispered: i love you, in a beautiful teddy bear voice. and that was the best lullaby ever. she always fell to sleep like an angel flying in the skies with closed eyes on a warm and tender night, that is how she fell a sleep, the stewardess who loved a teddy bear who wispered so fluently into her ears. the teddy bear travelling inside of a stewardess bag from one country to another. sleeping the nights in the arms of a princesse. i will never leave you, said the teddy bear once in a while, and me to i will never leave you, answered then the stewardess, who had a white pyjamas with a pattern made of red aeroplanes and another yellow one with a pattern made of pink doves. she fell asleep in the arms of a teddy bear. i will never leave you. when the alarm clock started calling the teddy bear woke her up. the stewardess never took the teddy bear with her to the shower, she estimated that would be too much, and she showered alone behind white curtains while the teddy bear tried to read the morning paper aloud, it never worked, but it was worth trying. the teddy bear was blinded with love. and believed in miracles. the stewardess as well. we only have to be patient, only have to be patient, who knows, one day we´ll have kids, the teddy bear gene and the human gene will mix, and we will represent the outcome, although they didn´t want to become something of a material for the press, they wanted to live a life of their own, in privacy, and without too much talking, too many words. althought there were words of course, but never to forget that there was also silence, no word. like when you sit in your garden alone surrounded by green everywhere green and rays of sunshine, not so much of words unless you are followed by a newspaper.... running out of battery.....




p.s. fleiri uppljóstranir úr garði systur minnar





á morgun fær kærasta hennar frosk í skóinn frá jólasveininum





jólagjafalisti systur minnar



mamma: (?)

pabbi: munnhörpu
bróðir okkar: lamb + bók
mér systur hennar: (?)
kærustu sinni: (?)
bestu vinkonu: árs áskrift á vanity fair
besta vini: lamb + ?
mömmu kærustunnar: huldukonur í íslenskri myndlist
dætrum mínum: (?)
börnum bróður okkar: (?)
sér sjálfri: flugmiða til new york



systir mín er leið þessa dagana og ég veit ekki hvað ég get gert tilað breyta því, kannski ekkert
hún er ekki í jólaskapi og hún er ekki að njóta aðventunnar, ég held ég hafi sjaldan séð hana svona leiða
hún talar ekkert um jólagjafir eða jólamat, það er ekki verið að baka smákökur einsog talað var um, ég veit ekki hvað er að gerast með hana en ég veit að hún þiggur enga aðstoð, hún er þannig


Wednesday, December 14, 2005


í dag er ég á 16 tíma vakt, fyrst á einni deild og svo annarri, verð að skipta um sjúkrahús á milli morgunvaktar og kvöldvaktar, en ég svaf svo illa í fyrrinótt að ég var svoldið rispuð í morgun, í gærkvöldi hlustaði ég á upplestur úr nýjum bókum niðrí bæ, kannski ég lesi aðra bókina, hún vakti athygli mína, sérstaklega af því það er mynd af ljósastaur á kápunni, það finnst mér skemmtilegt, ég verð að lesa bók sem er með ljósastaur á kápunni, svo er ég að lesa bókina yosoy eftir guðrúnu evu minervudóttur, ég mæli með henni, hún er frábær bók, ævintýraleg, áhrifasterk, kyngimögnuð, bók sem búlgakov og dostojevski hefðu getað skrifað saman, einsog mér þykir einmitt með skáldjöfurinn vigdísi grímsdóttur, í henni eru samankomnir þeir búlgakov, dostojevski, tolstoj, hermann meville, kerouac, stephen king og síðast en ekki síst sú árrisula frú frá smálöndunum selma lagerlöf

systir mín er búin að lesa endinn og byrjanirnar á mörgum bókunum sem komu út fyrir jól, til þessa hefur enginn endir hitt hana í hjartastað en margar góðar byrjanir, og fínar miðjur, en jú, hún er þó ekki frá því að endirinn á yosoy sé góður, hún ætlar að lesa hann aftur, tilað vera viss, skv læknisráðum eiga turtildúfurnar mínar báðar að stunda göngutúra og það getur svosem meira en vel verið hún gangi niðrí bæ seinna í dag og inní bókabúð og kíki aftur á þennan endi





Tuesday, December 13, 2005

yfirlýsing á aðventu



ég er nokkurn veginn laus úr viðjum

nú hugsa ég ekki um mig sem eitthverja sem verði að lenda einhvers staðar í sögu með öðru fólki, nú hugsa ég um lífið og flakka ekki í huganum um framtíðarsali sem hafa margir svipuð markmið og IKEA, að hafa það sirkábát auðvelt, praktískt, hreint og beint og þægilegt, hjartnæmt og gott, ekki það að það séu ekki fín markmið en nú er ég meira að hugsa á heimspekilegu nótunum um lífið, tilveruna, fólk - já og ég er líka í fríi frá pólitíkinni því hún æsir mig upp








systir mín hætti við að halda jól og núna í dag ætlar hún að halda jól, ég hef alla vega alltaf ætlað að halda jól, ég er stabílli en hún en þó er ég uppreisnargjarnari en systir mín, uppreisnir hennar eru bara í kjaftinum á henni, hún segist alltaf vera að fara að gera uppreisn, gera skurrk í málunum, en allt lognast útaf, hún hefur ekkert bardagaþrek, ekki einsog ég, sem unglingar mátti alveg sjá muninn á okkur, ég var uppreisnargjörn, systir mín var alltaf stillt og gerði það sem til var ætlast, þótt hún klæddi sig í föt sem gæfu tilefni tilað halda að þar væri byltingarforingi á ferð, hún var bara að blekkja umhverfið með því og sjálfa sig mest, hún var og er enn með vitskerrtum klæðaburði að gefa sér frí frá því að konfrontéra heiminn af alvöru því það hefur hún aldrei þorað, eða þolað, systir mín raggeitinn, sem dag einn þykist ekki ætla að halda jól og kaupa jólagjafir en er mætt daginn eftir í smárann að raða smáhlutum og skemmtilegu dóti ofan í körfur og versla sokkabuxur og sokka handa þeim turtillófunum, búin að steingleyma að í fyrradag var hún með ofnæmi fyrir bandarískri menningu hlustandi á cowboy junkies og elvis presley í dag, en hún var líka að hugsa svo mikið um fyrirbærið menninguna í gær, t.d. valdið - powerið sem menningin hefur, og að kannski það væri bara allt björk að þakka /eða kenna hin stórfenglega útrás íslenskra fyrirtækja, að menningin sé þesslegur uxi sem plægir akur einsog trúarbrögðin, sbr hvítir kallar og nunnur sem fara til afríku með krossa í farteskinu að útbýta, það sé svipað og ferðalög bandarískra jazzista um evrópu in the 50ies, svipað og breski fótboltinn, svipað og ítölsku pizzurnar, kínverski maturinn, svipað og ferðalög íslensku skákþjálfaranna til grænlands gefandi börnum skáksett og kenna þeim herskáa en friðsama og hljóðláta íþrótt sem þjálfar hugann í að hugsa leiki fram í tímann og vera útsmoginn og kænn og vænn og í staðinn fyrir að drekka sig fulla og fremja sjálfsmorð að drekka sig fulla og tefla skák í reykmettuðu lofti innandyra, á eftir þessu frum-átaki menningarlegu, stilltu og hugsjónaríku muni svo dag einn íslenska friðargæslusveitin fara þangað og hertaka landið, en líklega verða þó færeyingar fyrri tilað hertaka ísland





Monday, December 12, 2005



það er ekki einsog systir mín sé í góðu skapi þessa dagana og heimilið þeirra er á hvolfi, allt fullt af kössum og skápum, skápar og kassar, ég held að konur sem búa saman séu ekki eins góðar í að taka til og konur sem búa með körlum, hún er líka búin með þessa amerísku bók, og svo glöð sem hún var með bókina í byrjun er hún alveg æf útí bókina núna, og það kom niður á öllu og öllum í kringum hana, meira að segja gat hún ekki hlustað á ameríska tónlist, frá le tigre, til venjulegs þjóðlagapopps og bob dylans (hún er einlægur eða var einlægur aðdáandi hans) og allra nema tónlist svartra, ofnæmið náði ekki þangað, eftir lestur þessarar bókar, "sem er svo hvít," segir hún, "svo hvít, svo hvít, svo hvít, um fólk dásamlega gott fólk, um fólk sem hefur allt til alls, getur farið á hótel í honólúlú hvenær sem því dettur í hug og svo þegar einhver deyr er allt svo hræðilega sorglegt hjá því, þetta fólk þarf t.d. ekki að vinna, í marga mánuði getur það helgað sig sorginni á meðan hún rjátlar af því, en ef fólk deyr hér á Íslandi þá fær fólk frí í mesta lagi 2 daga," ætli systir mín vilji koma á sorgarorlofi einsog mæðra og feðraorlofi, mætti halda það, en hún er alveg brjáluð útí þessa góðu bók svo það kemur niður á: kærustu hennar, bandarískri tónlist - "ég hlusta ekki á neitt helv. amerískt væl og vorkunnsemi, syrgjandi kellingar og kallar", kemur niður á jólunum, "ég er hætt við að halda jól og það fær engin jólagjafir frá mér nema kærasta mín og mamma," mér systur hennar, fýlan og brjálæðin kemur niður á mér og þarmeð dætrum mínum, heimilinu þeirra, hún snertir ekki við kössunum, mömmu, aumingja mamma, vinum hennar, aumingja systir mín, hvað hún lætur bækur og bíómyndir og allt sem er í plati stjórna lífi sínu, ég finn einlæglega til með henni, þessi ameríska bók, það vildi ég að hún hefði lesið eitthvað annað en þessa amerísku bók, hvers á heil heimsálfa að gjalda, ég segi að systir mín sé fordómafull einsog allt þetta vinstri fólk nútildags og allur heimurinn einsog hann leggur sig er að farast úr fordómum,








Thursday, December 08, 2005




systir mín er búin að gleyma mér afþví hún er að lesa einhverja ameríska bók og bróðir minn er monthani, maðurinn sem ég dái af hjartans afli er fjarverandi og mamma og pabbi komu til mín eftir vinnuna þeirra í dag og mamma sá í gegnum mig án þess að segja nokkuð, á morgun er ég í fríi, þessi maður, sem ég dái svona mikið, gerir mig svo fjarhuga og losar tengslin mín við vinnuna og allt mitt líf, hann tekur mig upp með rótum og ég veit ekki hvert hann ætlar með mig, ætli hann ætli að gróðursetja mig í öðrum garði eða halda mér svona í lausu lofti, systir mín segir:

lagaðu mjólkurgraut með kanil og rjóma handa stelpunum

úff hvað hennar orð eru alltaf hryllilega gamaldags

systir mín:
á föstudögum skaltu steikja hamborgara handa stelpunum og þér og borða með þeim kartöfluflögur svona í dósum, gefðu þeim kók með að drekka en þér einn tvo bjóra en ekki fleiri fyrst þú verður alltaf svona full + þunn, en á fimmtudögum skaltu laga mjólkurgraut með kanil sultu slátri smjöri rjóma

hvað á ég að gera á laugardögum?

pizzu, fondú, eða lundir, ís í eftirrétt og 3 vídeóspólur og fyrir kvöldið: göngutúr, hreingerningar, innkaup og soduko

á ég að hlusta á systur mína eða hanga í lausu lofti?

systir góð, en á sunnudögum?

sunnudagar eru góðir í göngutúra, taflmennsku, lestur og í kvöldmat er gott að borða kjúklingarétt
sundlaugar eru líka góðar á sunnudögum
á mánudaginn skaltu steikja fisk og hafa í eftirrétt súrmjólkursúpu

en á þriðjudögum?

pylsur og kartöflumús baked beans

miðvikudögum?
eitthvað gúmmelaði í ofni, gúmmelaði með makkarónum og túnfisk og osti

systir mín haltu þá áfram að lesa þessa amerísku bók





ég er með hálsbólgu og kvef í dag, svo ég fór ekki í vinnuna, svo ég smiti nú ekki sjúklingana, fór á fætur að laga mér kaffi og hringdi í systur mína sem sagði mér að hún ætli að gefa mér teketil, te og tesíu í jólagjöf, svo er hún að hugsa um að gefa bróður kærustu sinnar disk daníels ágústar, swallowed a star, svo var hún eitthvað að segja að hana langaði að gefa pabba okkar munnhörpu, og svo var hún eitthvað að segja að hún og kærastann ætli að gefa vinafólki sínu svuntur, ég sagði henni ég myndi gefa henni nýju skáldsögu guðrúnar evu minervudóttur, ég ætlaði að láta vin minn gefa mér eintak af henni svo ég þyrfti ekki að kaupa það sjálf, ég tími ekki að hafa frek fjárútlát í gjöfina hennar í ár, ég var rosalega rausnaleg við hana í fyrra






Wednesday, December 07, 2005

hér er ljósmynd sem kom á óvart


systir mín er að breyta jólagjafalistanum: hún ætlar að gefa bróður okkar disk með singapore sling, syni hans disk með tónlistarmanni sem heitir sama nafni og bróðursonur okkar, þórir, og er væminn anarkisti, konu bróður okkar disk með emilíu torrini, dætrum þeirra coco rosie og eitthvad mjög hart og djúpt rokk, dætrum mínum ætlar hún að gefa emilíu torrini, og singapore sling, mér ætlar hún að gefa jólaplötuna með ellen kristjáns og kk, þið eruð hvortsemeröll lesblind nema þú systir mín og mamma, en ég gef þér bók seinna systir mín kær, segir hún systir mín, en mömmu okkar ætlar hún að gefa ljóðabók þorsteins frá hamri sem nýútkomin er, og pabba disk með skúla sverri, afþví hún hitti þann virta tónlistarmann um daginn, og minnti hann hana á tímalausan gyðing, einnig sem hann bauð af sér góðan þokka, kærustu sinni ætlar hún að gefa kápu og sjálfri sér flugmiða til new york, alla pakkana ætlar hún að pakka inní svart og gyllt, svo langar hana að gefa einhverjum plakat af sofiu loren, kannskif frænku okkar sem heitir einmitt soffía



Sunday, December 04, 2005




við vorum að spá í eitt systurnar, eða hún var að tala um það og ég er sammála henni eins sjaldgæft og það er, að íslenskir karlmenn eru mjög langt á eftir í tísku, því nú fyrir meira en þremur árum komust líkamshár aftur í tísku útí heimi svo karlmenn hættu að raka þau af, af bakinu, bringunni, fótleggjunum, kringum kynfærin, en kallarnir á íslandi eru sem aldrei fyrr í vaxi, það er hápúnktur vaxsins hjá íslenskum köllum, einsog sjá með hjá mörgum íslenskum köllum á netinu, en þegar það er fyrir löngu úrelt annars staðar, við vorkennum íslenskum karlmönnum að vera svona aftarlega á merinni og systir mín vorkennir líka nærfatnabúðum á íslandi yfir því að hafa fordóma fyrir kellingalegum nærbuxum







ég hef ákveðið að skvíla jólagjafalista systur minnar:

í jólagjöf ætlar systir mín að gefa konu bróður okkar yosoy eftir guðrúnu evu minervudóttur og bróður sínum í frostinu eftir jón atla jónasson, dóttur minni ætlar hún að gefa bókina dætur hafsins eftir súsönnu svavarsdóttur, mömmu kærustu sinnar hefur hún hug á að gefa huldukonur í íslenskri myndlist





Saturday, December 03, 2005





mamma og mágkona mín og systir eru byrjaðar að baka fyrir jólin en ég er enn saklaus af jólabakstrinum, systir mín hermir eftir mömmu, eltir hana, um leið og mamma bakar franska súkkulaðiköku fer hún og bakar líka, mamma er fyrirmynd systur minnar í einu og öllu, mamma var að laga til áðan og þá datt fóturinn af sjónvarpsborðinu svo hún greip sjónvarpið áður en það datt ofan á hana, þá sagði pabbi, æj æj, ég hef alltof mikið að gera fyrir þetta, og þegar systir mín frétti þetta vildi hún fá að taka pabba í gegn, en þá sagði mamma að hann hefði ekki tíma fyrir það svo systir mín ætlar að taka pabba í gegn seinna, systir mín bað mömmu að hætta taka til, örugglega til þess að hún þyrfti ekki að taka til hjá sér því hún hermir allt eftir mömmu, en ég veit annars að hún er með einhverja tilraunastarfsemi að fara út í göngutúr eldsnemma á morgnanna en svo í þannig göngutúr í morgun varð hún svo hrædd við blaðburðarkonu að hún hljóp aftur inn og fór að hugsa um öll handahófskenndu morðin sem framin væru eldsnemma á morgnanna,

systir mín ætlar að gefa pabba myndin af pabba eftir gerði kristný í jólagjöf og mér ætlar hún að gefa ráðskona óskast í sveit eftir snjólaugu bragadóttur og mömmu ætlar hún að gefa í fylgd með fullorðnum eftir steinunni ólínu og bróður mínum huldukonur í íslenskri myndlist eftir hrafnhildi schram, en ég veit ekki afhverju ég er að kjafta frá, ég er bara smá fúl útí hana, já, almanak þjóðvinafélagsins gefur hún pabba líka, svo ég geti uppljóstrað öllu og bróður mínum að auki bókina kommúnismi, og mér líka bókina um íslensku fegurðardrottningurnar, og svo gefur hún mömmu örugglega líka kjarvalsbókina, hún var eitthvað að tala um það, ég held hún ætli að gefa kærustu sinni kjól og saumavél

systir mín finnur það á sér að steven spielberg sé væntanlegur til landsins




- nudd



Úr nuddi kem ég með höfuðverk. Ég vinn of mikið. Allar aukavaktirnar sem búskapur minn er háður. Kannski er betra að vinna mikið og hugsa minna og fara ekki í nudd. Allir sem ég þekki eru ævir útí ástandið á Íslandi en ég held að það mætti heyrast meir í fólki opinberlega. Á opinberum vettvangi. Fólki sem talar íslenskt talmál. Því fólk talar þetta við hvort annað, í eldhúsum og útá gangi í göngutúr þarsem það er öruggt um engar eftirlitsmyndavélar, eða a.m.k. hætti ég mér ekki niður í Austurstræti að ræða óánægju mína með pólítísk afskipti af heilbrigðiskerfinu. Einsog því að lyf sem sjúklingar þurfa fást ekki í apótekum og heldur ekki hjá heildsölunum sem flytja þau inn. Finnst kannski heildsölunum leiðinlegt að flytja inn lyf? Finnst alþingismönnum leiðinlegt og erfitt að hlusta á fólk annars staðar en í þinghúsinu? T.d. á stöðum þarsem eru ekki eftirlitsmyndavélar eða sjónvarpsfólk að taka það upp? Mörgum sem ég þekki finnst þeir eiga heima á geðveikrahæli í þessu landi og líka í fangelsi. Rosastóru fangelsi. Þar er ekki hlustað á vilja fólks því fólk hefur ekki leyfi tilað vera með vilja þareð hluti af refsingunni í fangelsum er að taka af fólki viljann. Erum við frjáls? Ég ætla að velta því fyrir mér um helgina. En kannski á maður ekki að velta svona spurningum fyrir sér um helgar, þá á maður að taka til í íbúðinni, setja hreint á rúmin, drekka svo bjór og sofa hjá, það er að segja ef maður er:

frjór

því samkvæmt Gústa Nielsar er kynlíf einungis fyrir frjósamt fólk.



Friday, December 02, 2005




Guð vill ekki að við eyðileggjum landið. Guð er á móti virkjuninni við Kárahnjúka.

um pistils Gústafs Níelssonar í Mbl í gær


Morgunblaðið birti pistil Gústafs Níelssonar í gær, og hét hann því fallega og göfuga nafni:

Að elska sitt eigið kyn

Þar telur Gústaf að það samræmist ekki lögmálunum sem Guð setti okkur mannfólkinu á jörðinni að elska sitt eigið kyn. Og einsog fleiri góðir menn virðist hann þekkja vilja Guðs betur en ég. Ég hélt að maður sýndi Guð þá virðingu að gera Guði ekki upp skoðanir:

Heyrðu Guð, ert þú meira fyrir homma en konukalla?
Heyrðu Guð, ert þú meira fyrir epli en appelsínur?
Heyrðu góði Guð, heldur þú meira með F.H. en Haukum?

Því Guð treystir okkur fyrir stórum og smáum mál og ansar því ekki ef draga á Guð inní svona flokkadrætti.

Á ég að spurja Guð að e.f.:

Heyrðu Guð, á ég að fara á klósettið núna?

Nei, auðvitað ekki, Guð treystir mér tilað vita það sjálf.

Guð treystir mér fyrir stórum hluta af lífi mínu sem Guð og mamma og pabbi gáfu mér og fleiri hafa komið við sögu tilað auðga það og veita lífi mínu brautargengi og góða og skemmtilegra daga.
En svo eru önnur mál sem eru of stór fyrir mig og þá verð ég að biðja um handleiðslu frá Guði. T.d. :

Guð, viltu hjálpa mér í að taka ákvörðun, viltu hjálpa mér þegar ég er svona ótrúlega sorgmædd einsog ég verð stundum,
Guð viltu koma vitinu fyrir þessa ríkisstjórn sem hefur ollið óhugnanlegu jarðraski við Kárahnjúka...

En ég get ekki hringt í Guð og spurt:

Guð, hatar þú homma?


Og afhverju ætti Guð að hata homma?
Afþví tveir karlkynslíkamar sem elskast geta ekki búið til börn? Er það útafþví sem Guð ætti að hata homma?Er kynlíf um að búa til börn? Er kynlíf barnaframleiðsla? Verksmiðja. Production of children? Ó, ég hélt að kynlíf væri ýmislegt fleira og getnaður væri lítil hluti þess. Ég veit t.d. sem starfsmaður í heilbrigðisgeira að það kynlíf sem verður að fara fram og getnaður megi verða er aðeins stundað í 15% tilvika af öllu því kynlífi sem fram fer í heiminum. SVona eru nú tölfræðirnar og þær ljúga ekki. ÞEtta var rannsókn sem gerð var á fólki sem átti stutt eftir og hafði engan hag af því að ljúga. Fólk sem á stutt eftir segir oft sannleikan - a.m.k. þorir það því meir en hinir. Okkar reynsla í heilbrigðisgeiranum. Kannski ég segi að Guð segi það líka Guðs reynslu eða að þannig hafi Guð hugsað sér einmitt að útbúa okkur... MEira um Gústaf eða um skoðanir hans:

Hvers vegna vill Guð þá aðeins þannig kynlíf sem veldur getnaði, Gústaf?

Vill Guð stanslaustar barneignir í hvert sinn að tvær manneskjur leggjast saman og elskast? Eða í tíunda hvert sinn? Ég held ekki - ef Guð vildi það t.d. þá hefði Guð búið líkama konunnar þannig að hún gæti eignast barn til áttræðs t.d. og Guð hefði ábyggilega gert jörðina þannig úr garði gerða að hún væri mjög hentug fyrir fjöldann allan af börnum. Að það væri auðveldara fyrir börn að hugsa um sig sjálf, nálgast mat á eigin vegum, og þau væru betur sjálfbjarga í náttúrunni, einsog t.d. litlar mýs og kanínur eru.
En Guð bjó til ákveðinn mekkanisma svo konur eru frjóar í c.a. 20 ár ævi sinnar, sem er aðeins c.a. einn fjórði af ævi konu sem verður áttræð.
Og Guð gæti hafa búið til þessa ásthrifningu sem verður oft á tíðum á milli fólks af sama kyni afþví að Guð var með því móti að finna upp ákveðna tegund af kynlífi milli fullorðins fólks sem
EKKI veldur frjóvgun og getnaði, sem er til þess gert aðeins að auðga andann og búa til áhyggjulausar sælustundir unaðar og frelsis tveggja einstaklinga í faðmi hvors annars. Kannski var það hugmynd Guðs með þessu sköpunarverki:

Ástum fólks af sama kyni. Að elska sitt eigið kyn. Að búa til kynlíf sem þyrfti ekki getnaðarvarnir.

En það var líka fyrir þá tíð að menn og konur fóru að sofa hjá hundum og öpum, og ná sér í að búa til ýmisskonar kynsjúkdóma, sem aftur hafa kallað á nauðsynina á e.k. hlýfðarfatnaði einsog verjum, smokknum.

En við tökum líka afleiðingar gerða okkar við mannfólkið, því við erum ekki ábyrgðarlaus, við kunnum að passa okkur sjálf líka og við leitum uppi aðferðir tilað lækna okkur þegar við veikjumst. Kynsjúkdómar eru eðlilegasti hlutur einsog kvef, og aðrar umgangspestir.

Og við smitumst ekki aðeins af sjúkdómum, því hver segir okkur að græðgin sé ekki smitandi, þunglyndið, fýlan, leiðindin og depurðin?
Að minnsta kosti ég verð döpur ef sit ég við hliðiná döprum manni - og hvað er að því? Það er bara dásamlegt að fólk hafi þó einhver áhrif hvert á annað á meðan að þeir sem fara með völdin hlusta t.d. ekki mikið á það. Ég vil að annað fólk setji mark á líf mitt.

Gústaf Níelsson skrifar í Morgunblaðið fyrsta desember:

"Leiðtogahlutverk er jafnan vandasamara, en hlutverk vikapilts."

Og ég get ekki verið meira ósammála Gústafi.

Gústaf skrifar
í Morgunblaðið fyrsta desember:

"Er ekki hámark sjálfselskunnar að leggja ást á sitt eigið kyn, og slík ást getur aldrei borið ávöxt."

Ég spyr Gústaf: Hvenær hefur það verið sjálfselska að elska náunga sinn?

Og annar póll: vinur systur minnar segir: ég er samkynhneigður þegar ég stunda ást með sjálfum mér einsog t.a.m. svo sjaldan sem ég geri sjálfsfróun?

Gústaf skrifar:

"...en stjórnarandstaðan mun taka þann kaleik frá henni og aðstoða dyggilega við það óþurftarverk, ásamt mörgu innan kirkjufólki, sem nú leggur nótt við dag, svo finna
megi fáránleikanum stoð í kenningu Krists...."

Kærleiksboðskapur Krists einsog ég les hann skiptir ekki fólki í flokka og hópa og aðskilur einn frá öðrum, heldur finnst mér kærleiksboðskapur Krists vilja sameina okkur og kenna okkur aðrar hugmyndir - sem því miður hafa aldrei náð neinu brautargengi í heiminum - í að bregðast við í lífinu, einsog t.d. með fyrirgefningu í stað haturs, og hefndar. Viðbrögðin okkar í lífinu eru afar oft
alls ekki í samræmi við kærleiksboðskap Krists og þessi pistill Gústafs gæti ekki verið fjarri kærleiksboðskap Krists er hann dregur svona fólk í dilka og hatast við ákveðna tegund af meðbræðrum sínum og systrum.


Gústaf, ég vil sendi þér kærleika og fyrirgef þér reiðina sem þú virðist bera í brjósti þínu gagnvart fólki, einsog t.d. systur minni, sem elskar m.a. sitt eigið kyn.

Heyrðu Guð, er það rétt sem Gústaf segir að þér líkar ekki við ástir á milli tveggja kvenna og karla?



- risar....



Ég nefndi áðan risa og hér er
þá saga um átök bónda og skessu - kíktu á söguna


Þegar landnemar komu til Íslands fyrir 1100 árum voru hér fyrir vættir, risar og skessur, sem höfðu numið landið á undan landnemunum frá Norge, skessurnar og huldufólkið er The Natives of Iceland.



unglingapartý


á þessum föstudegi til framar verður mér hugsað til síðustu helgar þegar húsið mitt fylltist af 17 ára krökkum en inní veisluna komu svo rúmlega tvítugir stórir kallar, (sem þau hin sautján ára kölluðu "þessa fertugu" - og vinkona dóttir minnar sagði svo réttilega:
- hafa þessir fertugu kallar ekkert betra við líf sitt að gera en fara í partý hjá 17 ára stelpum?
þessi setningu ættu þau að birta hjá mogganum og fréttablaðinu ókey
svigi lokast:
en nefnilega: rúmlega tvítugir kallar /fertugir, einsog þau kölluðu þá, komu óboðnir í boðið á limmósínu hvítri að lit, úr nágrannasveitafélagi skilst mér, og einn þóttist vera frændi einhvers partýhans, sem ég þekki ekki, en systir mín sagði að væri einn af þessum kallarnirpunkturis, en við ég og systir mín vorum sóttar þarsem við sátum með vinum því ég ætlaði að gefa krökkunum frið með sitt partý, þegar partýið var svona hertekið af þessum fertugu, og þangað fórum við, það er að segja hingað, - heim - , og tók nú nokkra stund að koma þessum stóru miklu mönnum sem létu öllum illum látum, voru hávaðasamir og - einsog systir mín heyrði af tali þeirra: "ætluðu að renna sér á þessa og hina stelpuna, ljóshærða, dökkhærða..." voru með bítti á stelpunum sín á milli, en með veigamikilli hjálp og skipulagningu komst að færa þá burt, þó enginn leigubíll væri nógu stór, að þeirra sögn, Þ E I R vildu S T Ó R A N leigubíl, komust ekki uppí litla, sem komu hver á eftir öðrum að sækja þá en þeir hundsuðu þá og svo yfirgangssöm var nærvera þeirra að leigubílstjórarnir snéru mótmælalaust við og fóru án þess að innheimta startgjaldið, einsog ég hef alltaf lent í ef ég get ekki notað leigubílinn sem ég panta, þ.e.s.a.s. ef óvart kemur eitthvað uppá sem verður þess valdandi að ég get ekki tekið bílinn sem ég pantaði, en það þurfa ekki þessir óróaseggir sem hafa ekkert betra við sinn tíma að gera en mæta í veislu hjá 17 ára stelpum, en loks kom - S T Ó R og B R E I Ð U R leigubíll sem þeim var þóknanlegur að troðast í, þetta voru einsog risar að troða sér inní partý hjá álfum og huldufólki má segja um þetta mál, nú er maður ekki lengur maður með mönnum nema ef maður er risi, en ég vona svo sannarlega að þessu risatímabili ljúki fljótt, að álfarnir fái að vera með, að þeir plássfreku og mikilsmennskubrjálæðu fari að slaka á og horfa í kringum sig eða niður fyrir sig réttara sagt -

ætli leigubílstjórar þori aðeins að innheimta startgjald hjá lágvöxnu óöruggu feimnu fólki sem öskrar ekki þegar það talar?

ég er alveg til í að klikka ekki




ég er alveg til í að klikka ekki
en það er ekki langt síðan ég var til í að klikka og ekki til í að klikka ekki