Wednesday, April 11, 2007

¿

---

er leiðinlegt að vera kona og fá skegg
er leiðinlegt að hætta að fara á túr

er gaman að byrja á túr 13 ára
var leiðinlegt frá 0 ára þangað til daginn sem ég fékk blæðingar
var leiðinlegt að vera stelpa

er gaman að vera kelling
er gaman að vera ekki neitt
er gaman að sitja og glápa útum gluggann
er leiðinlegt að vera með skegg

er gaman að borða snúð
er gaman að hlusta á niðinn í vindinum
er leiðinlegt að vera nærbuxnalaus undir pilsinu í roki

halelúja
amen

ég elska að vera nærbuxnalaus annað hvort í buxum eða pilsi og kápu eða úlpu í roki
koma heim og borða snúð

amen
halelúja

svo elska ég krumpaðan þúsund kall
sem ég dreg uppúr buxnavasa mínum
amen, halelúja

ég elska líka barnaraddir í fjarska
berast inn um gluggann
slátt opna gluggans í vindinum
systur mína sem situr og hugsar

halelúja
amen
plís god í love you
amen
halelúja

je suis sans moi
avec le vent
sans toi
libre et pas libre
trés fragile
une vrai être
sans moi
oui oui
quelq´un
amen halelúja

er leiðinlegt að vera kona með skegg?

No comments: