hæ beibí, segir prestur x og tendrar eld í sígó hjá mótorhjólatöffara á hommabar á flórida, ertu ekki hættur að reykja, segir mótorhjólatöffarinn við prest, ég hélt að prestar væru allir hættir að reykja, ég reyki í laumi, segir prestur x, þú veist hvernig það er, það reykja margir í vatíkaninu, alltaf á fundum í bankaráðinu þar er reykt, þú veist, peningar og seðlar, fara vel saman, já, segir mótorhjólatöffarinn, ég hætti að reykja í fyrra en ég byrjaði að reykja í gær afþví ég varð fyrir smá áfalli þegar ég var að skúra stigaganginn heima, nú, segir prestur x, hvað gerðist, það var kona sem hrópaði á mig: hommadrusla, þú ættir að þvo eitthvað annað en gólf, einsog til dæmis hvað, spurði ég og leit upp, var að vinda tuskuna, til dæmis til dæmis.... ég vissi alveg hvað hún ætlaði að fara að segja, svo ég greip framí fyrir henni og sagði: leidí, mundu orð guðs, þú skalt ekki leggja nafn guðs þíns við hégóma, og þessi hér: það sem þú vilt að aðrir menn gjöri yður skalt þú og þeim gjöra, hún hélt áfram að öskra á mig en ég heyrði ekkert lengur í henni, ég er góður í að útiloka mig frá umhverfinu og hélt áfram að skúra, en þegar ég kom inn til mín, varð ég að fá mér sígó, eftir allan þennan munnsöfnuð í pínulítilli konu, hvað getur safnast saman af orðum inní einu svona hrógi sem á ekki langt eftir, en skiljanlega, 90 ár af uppsöfnun af ljótum orðum, þú verður að smala þeim út, og hvers vegna þá ekki framan í gæja sem er að skúra stigaganginn, prestur x sogar út sígarettureyknum svo bærist hárið á höfði mótorhjólatöffarans, það er notalegt að tala við þig, segir prestur x og leggur lófann á lærið á mótorhjólatöffaranum, þykir þér gott að búa á flórida, spyr þá mótorhjólatöffarinn, la, la, segir prestur x, ég gæti alveg hugsað mér að búa annars staðar, en hér er samt góð hommasena, ég fíla hommabarina á flórida í botn, segir prestur x, hommabarirnir í róm eru þó betri en fólk í evrópu er svo villt og óheiðarlega spillt á meðan við kanarnir erum heiðarlega spilltir og heiðarlega villtir, fattarðu hvað ég meina? nei, segir mótorhjólatöffarinn, ertu að gefa í skyn að þú sért mikið fyrir s og m, spyr svo mótorhjólatöffarinn og prestur x kinkar kolli, þú ert smarthed, segir hann, gaman að hitta smarthed hér á flórida, ég hélt að þau væru öll farin noður á bóginn á tímabili, alveg búinn að gefast uppá að hitta smarthed, i like you, segir prestur x og snertir laust vanga mótorhjólatöffarans, mótorhjólatöffarinn blæs frá sér reyknum á sama tíma og vanga hans hitnar, þetta er himnesk snerting, hugsar hann, og honum finnst sem það brenni undan lófum prests x, komum á mótel, segir mótorhjólatöffarinn, ljúkum þessu af, því ég þarf að fara með mótorhjólið mitt í viðgerð í fyrramálið og ég vil ekki vera illa sofinn þegar ég keyri í morguntraffíkinni, snjöll hugmynd, segir prestur x og kyngir munnvatninu uppfullur af stressi, ekki lent á svo notalegum og þægilegum sjens lengi, þetta er indælis piltur, hugsar prestur x og kastar sígóinni í gólfið og stígur svo á hana með leðursólaskónum, svoldið stressaður er hann líka fyrir því að sýna líkama sinn jafn fallegum eða myndarlegum manni og þessi mótorhjólatöffari er, í evrópu, nánartiltekið í róm, er ekki jafn mikil áhersla á líkamlega glæsimennsku einosg á flórida, og hann er alltaf hálf óöruggur þegar hann háttar með öðrum karlmanni í bandaríkjunum, þó hefur hann hvergi hitt jafn skilningsríkt fólk og þar, og notið betra kynlífs en í u.s, í róm, í róm eru augnablikin eldfim og djúp, dýpri en nokkurs staðar hér á jörðu, en á flórida vara þau lengur þótt þau séu grynnri en í róm, og þegar á heildina var litið, kunni hann alltaf betur og betur við augnablikin í flórida, þetta er prestur x að hugsa þegar hann tekur utan um axlir mótorhjólapiltsins hárprúða - hár hans minnir svo sannarlega á hárbrúskinn á honum jim sáluga morrison, svo líflegt, þykkt og liðað, já - er þeir ganga útaf hommastaðnum og útí dimma myrkrið á flórida, lykt af hita, mjúkum hita og dauf bensínstækja, einhver fuglahljóð, mótelið er hérna rétt hjá, hvíslar mótorhjólatöffarinn rámri röddu, ég elska þig beibí, hvíslar prestur x á móti, hann finnur það strax STRAX, að hann elskar þennan gullfallega pilt, ég er fulltrúi guðs hér á jörðu, hlutverk mitt er m.a. að leiða karlmenn saman með ást, binda þá saman með andlegum böndum kynlífs og ástar, þetta er mikilvægt hlutverk, og þó það sé vantmetið af mönnum er það aldrei ofmetið á himnum, ú ú, ú ú, heyrist í sléttuúlfunum í næturfjarska, ú ú, ú ú, við innganginn á mótelinu er kókmasín, prestur x stingur aur í raufina og dolla plompar niður kókmasínina, hann tekur utan um gufukalda dósina, opnar, sker sig smá á vörunum þegar hann sýpur af drykknum, hann finnur að mótorhjólatöffaranum þykir það fallegt hann skuli skera sig á dósinni, næturvörðurinn stokkar spilin sem hann hefur verið að handfjalta, hvað get ég gert fyrir the referan? spyr hann, það eru biblíur á öllum herbergjunum hér, bætir hann við, en prestur x segist vita það, ég er ekki kominn tilað lesa biblíunna herra næturvörður, enda kann ég hana utanað, hingað er ég kominn tilað svala fýsnum mínum, og binda saman karlmenn heimsins í einn heilan og óslítanlegan kærleikskrans, mótorhjólatöffarinn hlustar ekki, búinn að útiloka sig frá umhverfinu, augu hans mæna útí loft, mæna á the kókmasín, mæna á pínulitla sárið við varir prestsins, svo orð hans öll orð hans litast blóði og kossar hans væntanlega líka, næturvörðurinn læðist ofan í skúffu að ná í byssuna, myrkrið næturdimman er hvergi eins dimm og á flórida sem helgast af því að þetta er skagi umvafinn sjó báðum meginn, næturvörðurinn hugsar: páfi hlýtur að þakka mér með bónus ef ég drep þessa saurlífsseggi, og guð að koma fjölskyldu minni til aðstoðar á erfiðum tímum, það getur nú varla verið að ég lendi í elektróstól fyrir að myrða tvo homma, svo hlær hann með sjálfum sér og lófar handfangið á vopninu
Wednesday, January 18, 2006
hæ beibí, segir prestur x og tendrar eld í sígó hjá mótorhjólatöffara á hommabar á flórida, ertu ekki hættur að reykja, segir mótorhjólatöffarinn við prest, ég hélt að prestar væru allir hættir að reykja, ég reyki í laumi, segir prestur x, þú veist hvernig það er, það reykja margir í vatíkaninu, alltaf á fundum í bankaráðinu þar er reykt, þú veist, peningar og seðlar, fara vel saman, já, segir mótorhjólatöffarinn, ég hætti að reykja í fyrra en ég byrjaði að reykja í gær afþví ég varð fyrir smá áfalli þegar ég var að skúra stigaganginn heima, nú, segir prestur x, hvað gerðist, það var kona sem hrópaði á mig: hommadrusla, þú ættir að þvo eitthvað annað en gólf, einsog til dæmis hvað, spurði ég og leit upp, var að vinda tuskuna, til dæmis til dæmis.... ég vissi alveg hvað hún ætlaði að fara að segja, svo ég greip framí fyrir henni og sagði: leidí, mundu orð guðs, þú skalt ekki leggja nafn guðs þíns við hégóma, og þessi hér: það sem þú vilt að aðrir menn gjöri yður skalt þú og þeim gjöra, hún hélt áfram að öskra á mig en ég heyrði ekkert lengur í henni, ég er góður í að útiloka mig frá umhverfinu og hélt áfram að skúra, en þegar ég kom inn til mín, varð ég að fá mér sígó, eftir allan þennan munnsöfnuð í pínulítilli konu, hvað getur safnast saman af orðum inní einu svona hrógi sem á ekki langt eftir, en skiljanlega, 90 ár af uppsöfnun af ljótum orðum, þú verður að smala þeim út, og hvers vegna þá ekki framan í gæja sem er að skúra stigaganginn, prestur x sogar út sígarettureyknum svo bærist hárið á höfði mótorhjólatöffarans, það er notalegt að tala við þig, segir prestur x og leggur lófann á lærið á mótorhjólatöffaranum, þykir þér gott að búa á flórida, spyr þá mótorhjólatöffarinn, la, la, segir prestur x, ég gæti alveg hugsað mér að búa annars staðar, en hér er samt góð hommasena, ég fíla hommabarina á flórida í botn, segir prestur x, hommabarirnir í róm eru þó betri en fólk í evrópu er svo villt og óheiðarlega spillt á meðan við kanarnir erum heiðarlega spilltir og heiðarlega villtir, fattarðu hvað ég meina? nei, segir mótorhjólatöffarinn, ertu að gefa í skyn að þú sért mikið fyrir s og m, spyr svo mótorhjólatöffarinn og prestur x kinkar kolli, þú ert smarthed, segir hann, gaman að hitta smarthed hér á flórida, ég hélt að þau væru öll farin noður á bóginn á tímabili, alveg búinn að gefast uppá að hitta smarthed, i like you, segir prestur x og snertir laust vanga mótorhjólatöffarans, mótorhjólatöffarinn blæs frá sér reyknum á sama tíma og vanga hans hitnar, þetta er himnesk snerting, hugsar hann, og honum finnst sem það brenni undan lófum prests x, komum á mótel, segir mótorhjólatöffarinn, ljúkum þessu af, því ég þarf að fara með mótorhjólið mitt í viðgerð í fyrramálið og ég vil ekki vera illa sofinn þegar ég keyri í morguntraffíkinni, snjöll hugmynd, segir prestur x og kyngir munnvatninu uppfullur af stressi, ekki lent á svo notalegum og þægilegum sjens lengi, þetta er indælis piltur, hugsar prestur x og kastar sígóinni í gólfið og stígur svo á hana með leðursólaskónum, svoldið stressaður er hann líka fyrir því að sýna líkama sinn jafn fallegum eða myndarlegum manni og þessi mótorhjólatöffari er, í evrópu, nánartiltekið í róm, er ekki jafn mikil áhersla á líkamlega glæsimennsku einosg á flórida, og hann er alltaf hálf óöruggur þegar hann háttar með öðrum karlmanni í bandaríkjunum, þó hefur hann hvergi hitt jafn skilningsríkt fólk og þar, og notið betra kynlífs en í u.s, í róm, í róm eru augnablikin eldfim og djúp, dýpri en nokkurs staðar hér á jörðu, en á flórida vara þau lengur þótt þau séu grynnri en í róm, og þegar á heildina var litið, kunni hann alltaf betur og betur við augnablikin í flórida, þetta er prestur x að hugsa þegar hann tekur utan um axlir mótorhjólapiltsins hárprúða - hár hans minnir svo sannarlega á hárbrúskinn á honum jim sáluga morrison, svo líflegt, þykkt og liðað, já - er þeir ganga útaf hommastaðnum og útí dimma myrkrið á flórida, lykt af hita, mjúkum hita og dauf bensínstækja, einhver fuglahljóð, mótelið er hérna rétt hjá, hvíslar mótorhjólatöffarinn rámri röddu, ég elska þig beibí, hvíslar prestur x á móti, hann finnur það strax STRAX, að hann elskar þennan gullfallega pilt, ég er fulltrúi guðs hér á jörðu, hlutverk mitt er m.a. að leiða karlmenn saman með ást, binda þá saman með andlegum böndum kynlífs og ástar, þetta er mikilvægt hlutverk, og þó það sé vantmetið af mönnum er það aldrei ofmetið á himnum, ú ú, ú ú, heyrist í sléttuúlfunum í næturfjarska, ú ú, ú ú, við innganginn á mótelinu er kókmasín, prestur x stingur aur í raufina og dolla plompar niður kókmasínina, hann tekur utan um gufukalda dósina, opnar, sker sig smá á vörunum þegar hann sýpur af drykknum, hann finnur að mótorhjólatöffaranum þykir það fallegt hann skuli skera sig á dósinni, næturvörðurinn stokkar spilin sem hann hefur verið að handfjalta, hvað get ég gert fyrir the referan? spyr hann, það eru biblíur á öllum herbergjunum hér, bætir hann við, en prestur x segist vita það, ég er ekki kominn tilað lesa biblíunna herra næturvörður, enda kann ég hana utanað, hingað er ég kominn tilað svala fýsnum mínum, og binda saman karlmenn heimsins í einn heilan og óslítanlegan kærleikskrans, mótorhjólatöffarinn hlustar ekki, búinn að útiloka sig frá umhverfinu, augu hans mæna útí loft, mæna á the kókmasín, mæna á pínulitla sárið við varir prestsins, svo orð hans öll orð hans litast blóði og kossar hans væntanlega líka, næturvörðurinn læðist ofan í skúffu að ná í byssuna, myrkrið næturdimman er hvergi eins dimm og á flórida sem helgast af því að þetta er skagi umvafinn sjó báðum meginn, næturvörðurinn hugsar: páfi hlýtur að þakka mér með bónus ef ég drep þessa saurlífsseggi, og guð að koma fjölskyldu minni til aðstoðar á erfiðum tímum, það getur nú varla verið að ég lendi í elektróstól fyrir að myrða tvo homma, svo hlær hann með sjálfum sér og lófar handfangið á vopninu
Tuesday, January 17, 2006
nú voru tvö líkamsræktartröll að bindast hvor öðrum, annar fór á hnéskeljarnar: viltu giftast mér ástmaður?
hinn kyssti á handarbakið han og sagð:
já, auðvitað, elskan mín.
nú fara þeir niður í dómkirkju að panta brúðardaginn. þeir eru mjög fallegir og myndarlegir og það er góð lykt af þeim því þeir fara alltaf í bað eftir æfingarnar. þeir elska hvorn annan. þeir raka hvorn annan. þeir raka líka öll hár af líkamanum og svo setja þeir á sig brúnkukrem og ilmolíur. þeir segjast lifa í sátt við sjálfan sig. mæður þeirra munu leiða þá inn kirkjugólfið því báðir feður þeirra, skemmtileg tilviljun, eru í hjólastól, annar eftir sjóslys, hinn eftir bílveltu. eru þeir saman afþví að báðir feður þeirra eru í hjólastól? eru þeir hommar afþví báðir feður þeirra eru í hjólastól? raskar það karlmannsímynd að eiga föður í hjólastól? eru þeir kannski hommar afþví mæður þeirra eru mjóar, með fjólublálituð augnlok, sem þykir nú fallegt, þegar mánaskinið fellur á þökin og ljósin eru kveikt í stofunum og eldhúsunum og eitthvað rautt er í matinn, þá er fallegt að vera með fjólublálituð augnlokuð, eru þeir kannski hommar útaf því? þeir játast hvor öðrum og trítla niður í dómkirkju að panta tíma fyrir kirkjulega athöfn heitgöngunnar kærleiksríku, fegnir að þurfa ekki að panta jarðarför, einsog hommar voru mikið til að gera á níunda áratugnum, nei tímar breytast og bjartsýnin ríkir. önnur mamman ætlar að gefa þeim tjald í brúðargjöf, hin rauðan sportbíl. annar pabbinn ætlar að gefa þeim svefnpoka sem hægt er að renna saman, og hinn pabbinn gefur þeim þvottavél. nú eru þeir að tala við prestinn sem finnur handa þeim tíma fyrir athöfnina. presturinn er myndarlegur maður þó hann sé ekki hommi, með grátt í vöngum, svoldið glansandi augu afþví hann notar augnúða og er líka með ofnæmi fyrir köttum, og hann var á kattarheimili fyrir nokkrum klukkustundum að hjálpa fólki við að semja frið í einkalífinu. prestur getur ekki neitað að fara inná heimili þarsem eru kettir þótt hann sé með ofnæmi fyrir þeim. hann verður að sinna skylduverkum sínum sama þótt það kosti hann glansaugu, nefrennsli, kvef, þunga fyrir höfðinu og handskjálfta. og hann fær ekkert borgað aukreitis fyrir það, fulltrúi guðs á jörðu vill heldur ekki auglýsa fyrir biskupi sínum að hann sé með ofnæmi fyrir dýraríkinu. það er leiðinlegt fyrir hann að hósta svona á sköpunarverkið. en svo indælir eru kraflyftingapiltarnir að presturinn gleymir ofnæminu um hríð á meðan hann skrifar niður sálmana sem syngja á við athöfnina.
séra prestur, vonandi kemur svo að því að þú jarðir okkur, því þú ert svo kurteis og góður, við höfum aldrei hitt jafn kurteisan og góðan prest fyrr, segir annar kraftlyftingapiltanna.
einu sinni hittum við prest sem var svo vondur við okkur, en við skulum ekki tala um það, við höfum vanið okkur á að tala ekki um þetta vonda og leggja áherlsu á það góða í mannlífinu, heldur hinn áfram, og prestur kinkar kolli og segir:
það er einmitt þannig sem maður á að lifa, segir prestur og þurrkar sér í framan með vasaklút.
piltarnir taka í höndina á prestinum, takk séra, fyrir einstaklega góða þjónustu, svo leiðast þeir útúr kirkjunni svo brakar í gömlum viði í gólffjölunum. annar fær gæsahúð, afþví svona brak lætur hann fá gæsahúð, hinn langar að faðma hinn að sér því hann er svo glaður og hvíslar: úff, gaman væri bara að skella sér í herbergi á borginni (hótellið við hliðiná kirkjunni) í einn, ég elska þig, ég er brjálaður í þig, hvíslar hann, lágt, lágt, í kirkjunni. en presturinn stendur í kirkjuglugganum og horfir á hina ástföngnu kraftlyftingamenn ganga yfir götuna og í átt að rauða sportbílnum sem önnur mamman gat ekki beðið með að gefa þeim. presturinn hugsar, hann hugsar: ástin er eilíf, hann snýtir sér og þurrkar sér um augun, svo hugsar hann um gömlu prestana sem reyndu við hann þegar hann var ungur stúdent, en hann var aldrei svo skapi farinn að hann langaði að kyssa þá, hann langaði aldrei að kyssa kalla, en hann reyndi þó að kyssa einn en gat ekki sofið hjá honum afþví hann þorði ekki að standa sig ekki í rúminu gagnvart jafn gáfuðum manni og sá var og þess vegna sneri hann sig útúr því og sagðist vera með magapest, þegar sá leitaði eftir því að fá að sofa hjá honum. þegar það gerðist svo aftur, að sá kom að máli við hann og vildi sofa hjá honum, þá var hann í alvörunni með magapest og síðan þá hefur hann vitað að ef maður vill fá magapest á maður bara að ljúga því maður sé með magapest nokkru áður, og þá kemur það. svona var það. þessar magapestir, ein upplogin og önnur sönn, fældu þetta háæruverðuga gáfumenni frá honum, og hann var því alla tíð feginn. en kannski hefði hann bara átt að láta slag standa. kannski hefði það verið gaman. kannski hefði maðurinn skilið hann, getað náð honum uppúr minnimáttarkenndinni sem hann hafði gagnvart sjálfum sér sem kynveru. og þeir tveir myndu búa saman í dag, í staðinn fyrir mállausa konu sem var alltaf að reyna að hætta reykja, kannski var það líka honum að kenna að hún var mállaus, gat ekki hætt að reykja. æji, manú, hvað veit maður svosem hvað er best fyrir mann og kannski ekkert. nú eru kraftlyftingarmennirnir að elskast heima hjá sér og presturinn finnur það, hann finnur sláttinn í eiginn líkama, hann finnur það, svona einosg upploginn magapest sem gerist síðar, hann finnur lykt í eiginn höfði af ferskum brundi. oj bara, hugsar hann með sér og skelfur einsog hrísla í vindi.
Monday, January 16, 2006
ástin tekur völdin í dómkirkjunni, ástin tekur völdin á íslandi, tveir kallar, fremur vel hærðir, samanbrýndir, dálítið yggldir, með mikið skegg báðir tveir, stórir og feitir, voru að giftast hvor öðrum í dómkirkjunni í gær, fyrrverandi eiginkonur þeirra brostu af gleði á fyrsta bekk og héldu utan um mömmur brúðgumana, tvær eldri dömur í gullskóm, þær vildu báðar fara í gullskó við brúðkaup einkasonanna sem hittust á kaffihúsi hér í reykjavíkurborg, þegar þeir voru að kaupa jólagjafir handa eiginkonunum, græna brjóstarhaldara, þó þá langaði ekkert að gefa eiginkonunum það, en voru búnir að gefa sig skyldurækninni á vald, einsog þeir viðurkenndu síðar, en eiginkonurnar voru fegnar að losna við þá, þær eru strax byrjaðar á sjens með mönnum sem segjast ekki vera hommar, fyrsta sem þær spurja aðdáendur sínar núna: ertu hommi, svo hlæja þær dátt því þetta finnst þeim fyndið, brúðgumarnir voru klæddir í íslenska þjóðbúninginn, annar með gullvasaúr, hinn með armbandsúr, mjög vel hærðir, já já, ástin tekur völdin in reykjavik city
in iceland the love is pure and natural
æj hvað tengdóarnar tvær voru sætar þegar þær leiddust á gullskóm báðar á eftir brúðgumunum útúr dómkirkjunni, svo komu eiginkonurnar fyrrverandi leiddust líka, svo komu vinirnir og frændfólkið, presturinn stóð eftir uppvið altarið stoltur og bjartsýnn um framtíð og framgang ástarinnar á íslandi
amor flýgur yfir eyjunni og hittir núorðið mikið beint í hjartastað afþví ástin er hrein og tær á íslandi, auðvelt að hitta beint í hjörtun útaf því hvað loftið er hreint og tært og ómengað splisssíjjj þjóta örvarnar úr boga amors beint í hjörtu sem finna til
ísland er búið að breytast svo mikið eftir þessar nýju áherslur á ástina
hrein og tær einsog mjöll er ástin á íslandi
Thursday, January 12, 2006
nú er búið að jarðsyngja nokkur skrímsli í dómkirkjunni þó dómkirkjan sé ekki mikið fyrir að jarðsyngja skrímsli, best að jarðsyngja þau í kyrrþey í einhverri kapellunni, kannski í fossvogi, það er líka ódýrasti möguleikinn á jarðarförum, kyrrþeyin, skrímsli eru oftast nær jarðsungin í kyrrþey og þögn, en nú var verið að gefa saman tvær konur í dómkirkjunni, undur fagrar eru þær, fegurðardísir sem féllu hvor fyrir annarri á kaffihúsi hér í reykjavíkurborg, voru víst trúlofaðar köllum þegar þær hittust, unnustarnir fyrrverandi skilja þetta vel, því þær eru svo fallegar, og líkur sækir líkan heim, þeir voru líka alltaf svo óöruggir afþví þeir eru ekki beint fegurðardísir samkvæmt skilgreiningunni og hinu samtímarlega fegurðarmati, alltí lagi, þessar tvær dísir voru einsog klipptar útúr sameiginlegu ímyndunarafli vesturlandabúa um hvað sé fallegt, þótt auðvitað þetta sameiginlega ímyndunarafl sé auðvitað líka algjört feik og e.k. uppspuni að rótum, en þær ókey eru fallegar, eða snotrar, gúdlúking, og fyrrverandi kærastarnir sem kokkáluðust eru ágætir þó líði ekki yfir marga þegar þeir birtast, en þær tvær stelpurnar brúðardísirnar eru orðnar ansi vanar því að líði yfir fólk hvar sem þær birtast, en nú eru þær semsagt að ganga í hjónaband í dómkirkjunni, og fallegasti presturinn í landinu fær að gefa þær saman, mömmur þeirra og pabba eru ekkert agalega fögur en þau eru stolt af dætrum sínum, og líka að sjá svona tvær fallegar konur gefast hvor annarri, úl la la, það voru allir að brjálast í kirkjunni, grátandi margir og flössunum úr myndavélunum rigndi yfir þær, allir elskuðu þær og elska þær, þær eru svo sætar, önnur með tyggjó, óvart gleymdi hún að taka það útúr sér áðuren pabbi hennar leiddi hana undir arminn eftir dómkirkjugólfinu, í fallegum brúðarkjólum frá danmörku, undir öðrum brúðarkjólnum faldi sig pínulítill selur, allt í lagi, biskup grét af gleði uppí stúkunni, afþví hann vildi sjá þessa fegurð berum augum, og kirkjukórinn grét líka, fegurðardísirnar gengu útúr kirkjunni, smell smell í myndavélunum, beint útí hvíta límósínu, beint útá flugvöll í brúðkaupsferðalag til malaga, fimmhundruð hvít mótórhjól fylgdu þeim útá flugvöll, biskup var á einu mótórhjólinu í hvítum fötum, og fleiri mæta menn mátti sjá í hópnum, það er búið að finna útúr því að það er ekki Guð sem ákveður hverjir giftast, heldur fólk, einsog það er ekki Guð sem ákveður hvort að mála eigi húsið rautt eða gult, fólkið í húsinu ákveður það, það er loks búið að finna út hvað er fólks að ákveða og hvað Guðs, og þess vegna hópast nú skrímslin niður í dómkirkju að panta tíma -
systir mín er alveg búin að skríða inní einhvern helli, hún heldur örugglega að hún sé skrímsli og skrímsli eiga heima í hellum, það er ekkert símabox í hellinum hennar eða gervitunglasamband þangað
skv stöðu himintunglanna á fólk að leita sér þekkingar á næstu vikum og vera rólegt í líkamanum og þurfandi í andanum, en gleyma sér ekki um og of í sjálfsfróun þó mælt sé með henni a.m.k. einu sinni í viku, segja stjörnurnar
eldri dóttir mín er búin að vera lasin, sú yngri vill líka ekki mæta í skólann þegar sú eldri mætir ekki vegna pestarinnar, ef að systir mín væri mamma þeirra mundu þær sjaldan eða aldrei mæta í skóla, en hún á heldur ekki börn og veit ekkert um uppeldi, hefur aldrei þroskast, getur ekki kennt öðrum rétt og rangt því hún þekkir ekki muninn, en hún sagði við mig um daginn, að ég væri ein sú besta mamma sem hún vissi um, og ég væri miklu miklu miklu betri mamma en ég gerði mér grein fyrir, ég hároðnaði þegar hún sagði þetta við mig, hún sagðist mundu tilnefna mig sem bestu mömmu í heiminum á óskarsverðlaunahátíðinni í mars n.k., ég held bara hún hafi nokkuð til síns máls en ég veit það ekki, ég verð pínu feimin þegar hún fer að tala svona, ég er líka menntuð í heilsugæslu og veit þegar fólk er ekki alveg í lagi, spyr mig stundum að því þegar ég hlusta á systur mína en ekki þó oft, þótt hún sé um þessar mundir að festast í skrímslaídentítííi, en það hefur heldur enginn vont af því að gera það í smástund í miðju skammdeginu
Monday, January 09, 2006
áðan sá ég fjóra menn ganga um í fínum frökkum, útaf restauranti yfir götu, í kasmírfrökkum, með fína trefla sem þeir fengu í jólagjöf, í glansandi skóm, nýklipptir, voru þeir einsog útúr bíómynd, ungir menn, úr hollywood mynd, að labba rétt hjá kaffi reykjavík, ég hugsaði: en hvað þá hefur dreymt um þetta lengi að geta verið í fínum fötum að labba um í lítilli borg, að vera mikill heimsborgari, og labba saman, við sömu götuna sem þeir fóru yfir var bekkur og þar sat þá skrímsli í risastórri kanaúlpu með hettuna vel yfir hausnum passandi sig aldeilis vel að láta ekki sjást í andlitið sitt, sneri baki í götuna, það gjóaðist aðeins í breiða hendi með sígarettu, eina hækju, svo var skrímslið sem faldi sig svona í úlpunni, vildi aldrei framar sjást, aldrei aldrei aldrei framar sjást, búið að lána koparstyttu rauðbrúna húfuna sína, svo styttan sem sneri að götunni var nú komin með húfu, fína húfu, sem skrímsli gaf henni, fjórmenningarnir í sæluvímu að labba í bílana sína, svona var það, kannski á einn þeirra einhvern tímann ekki eftir að vilja sjást, og örugglega allir, einhvern tímann, ég fann það svo vel afþví systir mín er líka skrímsli
Thursday, January 05, 2006
dett í marga lukkupotta
ég er búin að fá miða á tónleikana á laugardag, systir mín og bróðir eiga ekki miða, eða mamma og pabbi, og margir aðrir, ég datt aldeilis í lukkupottinn þegar ein kona á deildinni varð að selja miðann sinn, ég var einmitt búin að óska mér að komast á þessa tónleika og ekki bara það, þetta er ekki eini lukkupotturinn því ég datt í enn miklu stærri lukkupott í fyrradag þegar dóttir mín gaf mér safn af back to the future þáttum og það er nú toppurinn á tilverunni ég elska þessa þætti og hef unað mér við þá í vikunni
skrímsli eru góð fyrir heilann, eftir að ég hef hitt skrímsli, og er ég nú prestur, er ég allur uppveðraður og hress, það er andlegt sturtubað, ég fer alltaf með stóra hunangsköku í heimsókn til skrímslis, það er alltaf gaman að horfa á skrímsli borða hunangsköku, gefandi, hjartnæmt og gaman gaman, skrímsli láta mann hugsa allt uppá nýtt og það er gott því við viljum gjarnan halda í að hugsa allt á sama hátt og alltaf, endurtaka hugsanir okkar einsog spólu, það er líka auðvitað góðra gjalda vert en öllu má nú ofgera sérsaklega í nútímaheimi hraða og spillingar á tímum getuleysis þegar hver höndin á eftir annarri hreykir sér af greddu en við vitum betur við vitum að maðurinn og mannshugurinn og mannshöndin eru svo svo takmörkuð einmitt einsog heimsókn til skrímslis lætur okkur finna fyrir, takmörkum okkar og í framhaldinu af því fyllist maður unaðslegri auðmýkt sem er akkúrat rétta smyrslið fyrir nútímalíf, en varast skyldum við að verja öllum okkar stundum í samveru við skrímsli
Tuesday, January 03, 2006
moli úr skrímsla-eulogy í dómkirkjunni
"við vitum öll að skrímsli eru byrði á þjóðfélagið en þau eru byrði sem við viljum bera afþví þau gefa okkur svo mikið afþví þau hafa reynt það sem við hin fáum ekki að reyna og þarmeð fengið að skyggnast inní heim sem okkur hinum sem ekki erum skrímsli er og verður hulinn um ókomna tíð og þess vegna við umgengni við sæmilega gott skrímsli komumst við í snertingu við eitthvað andlegt, sem er svo gott fyrir okkur, í efnisheimi, skrímsli eru góð fyrir okkur að hafa þótt þau séu krefjandi og óþægileg, við elskum þau en við verðum líka að fá verðskuldað frí frá þeim, það þýðir ekki að vera með skrímslum alla daga, það gengi frá manni, skrímsli eru soddan orkusugur, en gott svona einu sinni í viku, að hitta skemmtilegt skrímsli, lífgar uppá tilveruna."
Monday, January 02, 2006
..."þrátt fyrir hvað skrímslið átti ljót föt og var illa til haft, oft andfúlt og óhreint, þá var alltaf gott að hitta það og eiga við það orð, því það gaf alltaf eitthvað af sér, þrátt fyrir allt, þetta skrímsli var hlaðið mannkostum þótt yfirborðið væri hreinræktað ógeð og gaman hefði verið að vera sá eða sú sem gaf því tannbursta og tannkrem í jólagjöf, en kannski hefði það aldrei notað þetta, kannski ekki, ef ég hefði gefið því sjampó hefði það bara verið útí hött og ekki vildi ég vera til að niðurlægja þetta sæta skrímsli með óþarflegum gjöfum..."
við getum ímyndað okkur: kirkju, dómkirkjuna í reykjavík, verið er að jarða skrímsli, risastór er kistan svo allir viðstaddir viti nú að skrímsli er dáið, að skrímsli er verið að jarðsyngja en ekki eitthvert yndislegt peð, en enginn viðstaddra veit þó að jarðneskar leyfar skrímslisins rúmast fyrir í eldspýtustokk útafþví að öll skrímsli fá bálför, þó misjafnt sé hvort kista er höfð til sýnis eða fagurmálað duftker við útförina, sem fer fram í kyrrþey því skrímsli hafa ekki efni á öðruvísi jarðarför, en kistan fær að vera uppá punt, útfararþjónustan lánar hana, það eru til sirka 3 svona skrímslakistur í reykjavík, þær fara aldrei ofan í jörðina, þær eru bara viðhafnarkistur fyrir skrímsli því einsog við sögðum: skrímslin eru alltaf brennd, en nú er presturinn að flytja minningarorð: "við jarðsyngjum í dag stórt og mikið skrímsli, þetta var gott og sómasamlegt skrímsli þótt það væri skrímsli, það gerði ekki flugumein þótt það hefði mátt á stundum vera betur til fara og greiða sér og tannbursta sig, enda var það með margar skemmdar tennur þegar það dó en einsog við segjum alltaf: hver er að fara að naga gulrætur í himnaríki, það var með svo stóran munn sem rúmaðist ekki fyrir á tannlæknastofu, þó vissulega það væri ögrandi verkefni fyrir unga tannlækna sem alltaf sækjast eftir ögrandi verkefnum við að sigrast á hinu ósigrandi, gaman hefði verið að skrímslið okkar sem við jarðsyngjum nú hefði fengið tannlæknaþjónsustu hjá ungu tannlæknunum suður í tanngarði, hinni reisulegu stofnun háskólans sem má sín mikils og við nú þörfnumst öll þrátt fyrir heilbrigt líferni og góðan hug, en skrímslið sem við jarðsyngjum var hæverskt skrímsli, fór ekki fram á mikið, þó það gæti síst af öllu takmarkað át sitt, þetta var skrímsli, skrímsli éta mikið..."
presturinn er ekki að fara að hætta, því þessi prestur elskar að halda eulogy yfir skrímsli og meira síðar
gleðilegt ár
gaman var um áramótin því ég var að vinna og fór svo og hitti systur mína og vinkonur hennar, við gengum á landakotstún og stóðum þar augnablikið þegar ártölin mættust
dætur mínar voru hjá pabba sínum um áramótin, stjúpdóttir hans dró eldri dóttur mína út á lífið, eða kannski að pabbinn hafi skipulagt það, því hann er mikið fyrir það að tengja fólk og láta ókunnuga kynnast, helst af öllu hefði ég viljað vera með dætrum mínum á nýjársnótt, en auðvitað eiga þær líka pabba, en ég vil vera aðalatriðið í lífinu þeirra, auðvitað, enn sem komið er, ég meina, á meðan þær eru ekki orðnar ungar konur, ég elska að vera mamma þeirra og það er líka gaman, þær eru dásamlegar
við systurnar sungum elvisarpresleylagið suspicious minds saman í karaoke á nýjársnótt
gaman var um áramótin því ég var að vinna og fór svo og hitti systur mína og vinkonur hennar, við gengum á landakotstún og stóðum þar augnablikið þegar ártölin mættust
dætur mínar voru hjá pabba sínum um áramótin, stjúpdóttir hans dró eldri dóttur mína út á lífið, eða kannski að pabbinn hafi skipulagt það, því hann er mikið fyrir það að tengja fólk og láta ókunnuga kynnast, helst af öllu hefði ég viljað vera með dætrum mínum á nýjársnótt, en auðvitað eiga þær líka pabba, en ég vil vera aðalatriðið í lífinu þeirra, auðvitað, enn sem komið er, ég meina, á meðan þær eru ekki orðnar ungar konur, ég elska að vera mamma þeirra og það er líka gaman, þær eru dásamlegar
við systurnar sungum elvisarpresleylagið suspicious minds saman í karaoke á nýjársnótt
Thursday, December 29, 2005
í gærmorgun fór ég með bílinn minn í viðgerð eldsnemma klukkan 8 en enginn gat komið með mér og keyrt mig þannig heim, ég tók leigubíl en ég hafði beðið systur mína en hún svaraði því ekki, svo ég bað hana ekki aftur en klukkan hálf3 um daginn vissi ég að bíllinn yrði ekki tilbúinn þann daginn og hringdi í systur mína að biðja hana um að keyra mig í vinnuna klhálf4 en þá var hún að keyra mömmu okkar heim úr vinnunni, sagðist vera að renna inní hafnarfjörð en ég spurði hvort hún gæti komið svo og náð í mig en hún sagðist vera í pásu frá sinni vinnu, hádegispásu en ég bragst ókvæða við, sagði: aldrei er hægt að gera mér greiða þegar ég bið um en hún sagði mér að hringja í bróður okkar en ég sagði að hann væri í hafnarfirði en hún sagði mér að hringja í pabba okkar, ókey, nei, hann er í vinnunni, sagði ég, hún sagði mér að hringja í minn fyrrverandi mann, nei aldrei, en taka leigubíl gat ég ekki átti ekki fyrir því en ég varð brjáluð, systir mín ömurleg lásí leiðinleg aldrei hægt að gera neitt fyrir mig en ég er ekki búin að hringja aftur í hana en hún hringdi eitthvað í mig 2 mínútum eftir samtalið að reyna að róa mig en það tókst ekki, bauðst tilað borga inná mig, osfrv osfrv, ég hringi ekki í systur mína í bráð en mamma segir að við megum ekki gera lífinu það að vera ósáttar
Tuesday, December 27, 2005
systir mín segir að hún sé skrímsli sem gott sé að elska, að hún búi í helli sem notalegt sé að vera í, að ástin hennar sé prinsessa, að prinsessan sé ekki fangi skrímslisins en að skrímslið sé fangi afþví það sé skrímsli, að öll skrímsli séu fangar, það sé ekki beinlínis auðvelt fyrir skrímsli að labba eftir götu með sitt langa skott og sinn stóra munn sem allt í einu spúi eldi, það sé erfitt að hafa stjórn á eldinum en hún sé þá bara meira inní sínum helli, að horfa á eldinn sem hún kveiki stundum uppí, og á prinsessuna dansa, og skuggana af dansi prinsessunnar, skrímslið sofni við flöktið í þeim sem eru svo svæfandi fyrir augnlokin, skrímsli eru með þung augnlok sem erfitt sé að halda opnum, skrímslið hún systir mín, ef hún fer í kringluna í dag mun kannski kringlan brotna undan þunga hennar, ef hún fer niður laugaveginn mölvast nokkur hús, svo hún heldur sér bara inni þótt hún sé svöng og dreymi um að steikja fisk á teini á eldinum sínum, fiskamatur hefur góð áhrif á skrímsli, þau róast og eru ekki nærri því eins uppivöðslusöm á eftir, skrímslið hún systir mín, þegar við vorum litlar var ég meira skrímsli en hún ef ég á að segja, alveg einsog er en nú er hún einhverra hluta vegna orðin meira skrímsli en ég, þetta er víst eitthvað sálfræðilegt atriði með systur, skrímslasystur sem skiptast á um að vera meira skrímsli en hin, svo veit ég ekki meir
systir mín gaf mér teketil í jólagjöf, hún segist ætla að taka hann tilbaka ef ég noti hann ekki, hún gaf mér líka telauf, tepoka og hunang, hún gaf einnig dætrum mínum skemmtilegar og áhugaverðar gjafir
ég var í svo fallegu pilsi um jólin og aðdáuninni rigndi yfir mig, allir elskuðu pilsið og mest mig
ég nenni ekki að lesa þessa dagana, fékk mary higgins clark lánaða í gær, í von um að ég gæti kannski lesið hana, en ég er í óverðskuldugu fríi frá íslenskum fagurbókmenntum, því miður, hvað er að mér
systir mín segir að ef hún ætti eiginmann mundi hún ekki fara fram á minna en hálfa milljón króna jólagjöf, pabbi gaf mömmu mjög falleg leðurstígvél
hún segir líka að allar mæður séu hafnar yfir gagnrýni
hún segir að ég og mamma séu verðlaunahafar í móðurhlutverkinu á heimsmælikvarða sem mæður
nú hefur ekki rignt í 2 klukkustundir samfleytt og eyrun hafa ekki enn vanist því að heyra ekki í regninu sem hefur runnið stanslaust úr skýjunum í 4 daga
smá pása
Tuesday, December 20, 2005
blinded by the chrismas light
jólaklukkurnar klingja frá nærliggjandi kirkju rétt í þessu
mér finnst sem herramaður sé að bjóða mér upp, hann er í svörtum fötum og jakkalafið er margra metra langt svo langt að það sér ekki fyrir enda þess
svo er hann með svarta hanska og þegar hann tekur þá af sér er hann býður dömunni uppí dans eru hendur hans veiklulegar, fölar nærri því bláar og með rauðbrúnu naglalakki og skreyttur er hann hring með fallegum steini, hann hneigir sig djúpt og virðulega, í augunum hans glitrar eitthvað sem líkist demanti og þegar hann opnar munninn er röddin úr flaueli og orðin úr gulli, þau eru einosg tunga sem sleikir hjartað mitt svo mjúk og falleg og nú býður hann mér upp, takk herra, segi ég og stíg í dansinn, við dönsum, ég er einsog kontrabassi í fangi hans nema liðugri og hann er einsog eðla sem heldur utan um mig nema ekki fötin hans eru úr hrjúfu flaueli, i love to dance with you, segi ég og lygni aftur augunum í fangi hans og hann segir, ég ætla að gefa þér fallegstu eyrnalokkana sem til eru í færeyjum, svo lokum við augunum, afþví við erum bæði gráti nær, og þá er betra að hætta að dansa, við hneigjum okkur hvert fyrir öðru, einosg prinsar og prinsessur gera á hallardansleik, og göngum sitt í hvora áttina, no harm done, no hard feelings, bara pínulítil nál í hjartanu sem finnst ekki
æargggggaææææægaeeeg svo kemur skrímsli inní höllina, tekur upp dansherrann minn í lúkuna og gleypir hann og annað skrímsli, vinarskrímsli hins, kemur hinum meginn að, grípur mig í lúkuna og gleypir mig lsdjfskdfwefsæææaæææsdæfwefaææ öskra skrímslin uppyfir sig að fara að gleypa fleiri sem þarna eru staddir í ímyndun minni dslfjaWLEFASDÆASDFJCVV
arg arg garg arg ælkjdflækasdjfwðefjsadvv
annað skrímslið er að draga í sér jakkalafið einosg langan lakkrís ú hvað það er endalaust langt þetta jakkalafur
nú dönsum við í mögum sitthvorra skrímslanna
það er bara fínt
það er bara stórfínt
argggsdgajskdgwegegasævgsjvkææææææ sdjweifjasdlkvasjkævj
ég sendi landsmönnum bestu kveðjur með laginu blinded by the chrismaslight, best að fara útí búð núna og sjoppa, ég e l s k a að kaupa
ég ætla sko ekki að stressa mig á jólunum, ég hef ekkert bakað og kannski mun ég ekkert baka, ég er í jólagjafainnkaupum, það er kapítuli útaf fyrir sig sem ég elska elska elska kaupa kaupa kaupa verst að ég er að reyna að lifa kreditkortslausu lífi, við systurnar, en hún er þó farin að nota sitt - rosalega mikið, úr gulli, en ég ætla sko ekki að stressa mig, olræt
margir í fjölskyldu minni eru með kaupæði ég þ.á.m. sem þýðir að við elskum að kaupa og verðum betri manneskjur af því að fara útí búð og versla, koma þaðan með eitthvað sem við höfum sett í töskuna eða pokann, og elskum að borga fyrir vörurnar fullum fetum, elskum að eiga í samskiptum við kaupmann, elskum að koma heim með dót svo nú er góssentíð fyrir mig og fleiri í fjölskyldu minni
fyrrverandi bóndi minn var líka svona og þess vegna áttum við svo vel saman á tímabili
systir mín þarf ekki annað að hlaupa útí búð og kaupa flatkökur og hún eflist við það lífsþrótti, það er líka gaman að kaupa á netinu, segir hún, eiginlega hrein unun, því við það bætist þrillið sem kemur þegar við fáum p a k k a
ástin er alls staðar líka í pökkum i love everything
ég er að fara með bílinn í skoðun, í gær hringdi ég kl. 3 í mömmu, við töluðum eitthvað saman, kom í ljós mörgum tímum síðar kl. 8 að við höfðum verið staddar báðar í smáranum, í sitthvorri búðinni, hlið við hlið, svona erum við jafnan nálægt hvert öðru alltaf í verslunarmiðstöðum án þess að vita af því, ég er komin með nýjan síma, hátalarinn var bilaður í hinum, enda get ég ekki verið með bilaðan síma útaf andlegu platónsku ástarævintýrunum (1) sem ég á í vændum á næsta ári, sá fyrrverandi bóndi minn keypti fyrir mig símann en ég borga honum mánaðarlega fyrir, eldri dóttir mín er forkunnar dugleg stúlka, hún vinnur í tveimur vinnum plúss að vera í skóla, ég er stolt af henni, og líka yngri dóttur minni sem er svo mikill ljúflingur, yngst og best, einsog mamma segir því hún er yngst sinna systkina, svo eru þær báðar bestar dæturnar mínar, ég er komin í gott jólastuð, ég elska að fara í búðir, bróðir minn kallaði systur okkar kellingu í gær, ég efast um að hún gleymi því fljótt, þó hún þykist vera kristni trúa og halda fyrirgefninguna sem hið besta manifesto leynist í henni lúmskur fjandi langrækninnar, aumingja hún, aumingja hinir sem að kalla systur mína kellingu, því þegar það gerðist eitt sinn að hún gekk útúr bíl (rústrauðum saab 99)á bílastæði fyrir framan sjoppu í mosfellsbæ á sólskinsdegi í ágústmánuði, nýkomin úr fjallgöngutúr uppá esjuna með ástkonu sinni og þeirra vinkonu sem alin var upp í eastgermany, var hún klædd í skyrtu með bindi - þannig fer maður í göngutúr uppá esju, einnig í fjallgönguskóm - og var að reykja vindil, þá voru þarna strákar í bíl, strákar úr mosó, einn sagði: "sjáiði strákar, þarna fer kelling með vindil og bindi,*" - auðvitað heyrði systir mín að í setningunni var stórkostlegt innrím og kannski var það þess vegna sem hún varð æfa reið, hún vildi ekki vera kveikjan að og efniviður stórkostlegs innríms, systir mín snarstoppaði, púaði frá sér vindlareyk, haltraði að bílnum, fór að rífast einsog hundur og köttur, greip um ís stráksa, sá var að borða ís í brauðformi, þegar strákurinn var kominn uppúr bílnum og grýtti ísnum hans í stéttinna,** loftið var eldfimt á bílaplaninu svo ummunaði að yrðu handalögmál en af tillitsemi að stríðsaðilinn hinn var kelling stilltu piltarnir sig, eða einn í hópnum sko dró ís lausa strákinn aftur inní bílinn, svona fór það, ísinn í stéttina, systir mín sagði við bróður okkar í gærkvöldi: "þú ert bróðir minn, þú kallar ekki systur þína kellingu", en ég held kannski hún láti þessa fallegu órímuðu setningu nægja, hún sagði hana svo einlægt og fallega, ástúðlega, hjartnæmlega, gefandi bróður okkar sjens á að breyta virðingarlausa munnsöfnuðinum - en ég spyr: hvað felst á bakvið munnsöfnuðinn, hvers vegna kallar bróðir minn systur okkar kellingu?
*look at this guys, here comes a lady with a cigar and a tie
**þá sagði strákurinn með sorgartóni, pínupons vælu-: konan eyðilagði ísinn minn
ath. mundi kelling sem er kristni trúar og trúir á fyrirgefninguna sem sitt helsta manifesto bregðast svona við á bílastæði fyrir framan sjoppu? svari hver fyrir sig
(1) á næsta ári hef ég ákveðið að helga mig platónskri ást eða þangað til ég hef ferðast til afríku, ég get ekki látið tilfinningarnar stöðva mig, og ég vil ekki fá karlmann inná heimilið, ég tek því rólega og læt aðra um að halda amori við á næstu mánuðum, ég hef líka áhuga á að upphefja ástina á hærra plan, og kynnast karlmönnum sem vinum, sem tigna saman vináttuna fremur en að fagna erosi á jafn væminn hátt og tíðkast, í bili það er að segja, þarað auki sem mér finnst þetta allt saman ofur dónalegt og hræðilega hallærislegt, svona ástarsambönd, nú á tímum, þegar fuglaflensan er í startholunum og ástandið í heiminum er einsog það nú er vægast sagt
p.s. systir mín var að segja mér að sýfilis væri komin aftur í umferð alla vega í bretlandi
sýfilis er hjartnæmur sjúkdómur
Sunday, December 18, 2005
dætur mínar koma mér á óvart, sú eldri fór á bakvið mig og mér sárnaði en amma hennar sagði við mig, dóttur sína, að það væri í náttúru fólks að fara á bakvið foreldra sína, og þó ég heyrði þetta sagt við mig af konunni sem ég fór einhvern tímann á bakvið, kannski nokkrum sinnum, þegar ég var á sama aldri og dóttir mín, ræð ég ekki við sárindin sem ég verð fyrir, systir minni þykir þetta heldur ekkert mál og ofureðlilegt, að eldri dóttir mín skyldi ekki segja mér frá demantinum sem hún setti í naflann, og ég sakna þess að fá engan hljómgrunn fyrir gremjuna í sjálfri mér, mamma er hafin yfir allt, og systir mín tekur ekki uppeldismál alvarlega, ég veit ekki hvernig barnið hennar væri ef hún ætti barn, en kannski hefði hún það fast í snúru, hún hefur a.m.k. sagt að hún mundi ekki senda það í skóla heldur kenna því sjálf, æj, ég veit það ekki, ég er hálf spæld, ég fór út að skemmta mér í gær og sá engan fallegan strák neins staðar, eða karlmann, svo fegurðarskyn mitt er líka vansvefta, ég er dálítil strákaflenna, ég sakna stráka, kannski ég ætti að eignast strákavin, en hvað gerir maður með strákavini sínum? situr á kaffihúsi og ræður um börnin sín og stjórnmál? ef ég væri óvirkur alki gæti ég átt strákavin í búningi trúnaðarmanns og við hist á kaffihús og talað um alkahól og alkahólisma og skipst á góðum ráðum, og talað um tiltektir og IKEA, en ef maður er ekki alki er minni möguleiki á að eiga strákavin ef maður er fjörtíu ára kona, æj, ég er að rugla, ég ætla að taka asperin og leggjast í sófann og horfa á popppunktinn
- systir mín var óþolandi í símanum í dag
- hún ætlar að gefa pabba disk með roger miller og mér disk með kate bush
- ég vorkenni henni að vera svona leiðinleg
- líklega eru dætur mínar skemmtilegri en ég
- rokkland er frábær þáttur, ólipalli er æði
Friday, December 16, 2005
við systurnar erum sammála um að rítalín sé ekki gott fyrir krakka
lýsi er betra og fiskur að borða, ekki kjöt, heldur fiskur og grænmeti
og bara lífræn ab mjólk á morgnanna og þá ekki meira af mjólkurvöru þann daginn
loksins erum við sammála um eitthvað, úff, hvað það er nú gott
geðlæknum þykir gaman að skrifa lyfseðla
once upon a time there was a stewardess who loved a teddy bear, and the teddy bear loved her, and followed her everywhere, in her stewardess bag, and the teddy bear had then travelled a lot, the teddy bear was very proud of the stewardess legs, and her beautiful small ears which the bear loved to touch with the mouth when they were lying down on the bed´s pillows of the cabin´s hotel in each and every city they went to. and the shoes the stewardess had did also love her. the shoes were red as were her dress and the scarf wich also followed her everywhere, oh it was not a lonely person who had a teddy bear, scarf and shoes following her everywhere, and those beautifull red painted nails, oh, how adorable the nails. she was happy and well surrounded be love and adoration. she lied down her head down on the pillows and the teddy bear touched her ear with the mouth and wispered: i love you, in a beautiful teddy bear voice. and that was the best lullaby ever. she always fell to sleep like an angel flying in the skies with closed eyes on a warm and tender night, that is how she fell a sleep, the stewardess who loved a teddy bear who wispered so fluently into her ears. the teddy bear travelling inside of a stewardess bag from one country to another. sleeping the nights in the arms of a princesse. i will never leave you, said the teddy bear once in a while, and me to i will never leave you, answered then the stewardess, who had a white pyjamas with a pattern made of red aeroplanes and another yellow one with a pattern made of pink doves. she fell asleep in the arms of a teddy bear. i will never leave you. when the alarm clock started calling the teddy bear woke her up. the stewardess never took the teddy bear with her to the shower, she estimated that would be too much, and she showered alone behind white curtains while the teddy bear tried to read the morning paper aloud, it never worked, but it was worth trying. the teddy bear was blinded with love. and believed in miracles. the stewardess as well. we only have to be patient, only have to be patient, who knows, one day we´ll have kids, the teddy bear gene and the human gene will mix, and we will represent the outcome, although they didn´t want to become something of a material for the press, they wanted to live a life of their own, in privacy, and without too much talking, too many words. althought there were words of course, but never to forget that there was also silence, no word. like when you sit in your garden alone surrounded by green everywhere green and rays of sunshine, not so much of words unless you are followed by a newspaper.... running out of battery.....
p.s. fleiri uppljóstranir úr garði systur minnar
á morgun fær kærasta hennar frosk í skóinn frá jólasveininum
jólagjafalisti systur minnar
mamma: (?)
pabbi: munnhörpu
bróðir okkar: lamb + bók
mér systur hennar: (?)
kærustu sinni: (?)
bestu vinkonu: árs áskrift á vanity fair
besta vini: lamb + ?
mömmu kærustunnar: huldukonur í íslenskri myndlist
dætrum mínum: (?)
börnum bróður okkar: (?)
sér sjálfri: flugmiða til new york
systir mín er leið þessa dagana og ég veit ekki hvað ég get gert tilað breyta því, kannski ekkert
hún er ekki í jólaskapi og hún er ekki að njóta aðventunnar, ég held ég hafi sjaldan séð hana svona leiða
hún talar ekkert um jólagjafir eða jólamat, það er ekki verið að baka smákökur einsog talað var um, ég veit ekki hvað er að gerast með hana en ég veit að hún þiggur enga aðstoð, hún er þannig
Wednesday, December 14, 2005
í dag er ég á 16 tíma vakt, fyrst á einni deild og svo annarri, verð að skipta um sjúkrahús á milli morgunvaktar og kvöldvaktar, en ég svaf svo illa í fyrrinótt að ég var svoldið rispuð í morgun, í gærkvöldi hlustaði ég á upplestur úr nýjum bókum niðrí bæ, kannski ég lesi aðra bókina, hún vakti athygli mína, sérstaklega af því það er mynd af ljósastaur á kápunni, það finnst mér skemmtilegt, ég verð að lesa bók sem er með ljósastaur á kápunni, svo er ég að lesa bókina yosoy eftir guðrúnu evu minervudóttur, ég mæli með henni, hún er frábær bók, ævintýraleg, áhrifasterk, kyngimögnuð, bók sem búlgakov og dostojevski hefðu getað skrifað saman, einsog mér þykir einmitt með skáldjöfurinn vigdísi grímsdóttur, í henni eru samankomnir þeir búlgakov, dostojevski, tolstoj, hermann meville, kerouac, stephen king og síðast en ekki síst sú árrisula frú frá smálöndunum selma lagerlöf
systir mín er búin að lesa endinn og byrjanirnar á mörgum bókunum sem komu út fyrir jól, til þessa hefur enginn endir hitt hana í hjartastað en margar góðar byrjanir, og fínar miðjur, en jú, hún er þó ekki frá því að endirinn á yosoy sé góður, hún ætlar að lesa hann aftur, tilað vera viss, skv læknisráðum eiga turtildúfurnar mínar báðar að stunda göngutúra og það getur svosem meira en vel verið hún gangi niðrí bæ seinna í dag og inní bókabúð og kíki aftur á þennan endi
Tuesday, December 13, 2005
yfirlýsing á aðventu
ég er nokkurn veginn laus úr viðjum
nú hugsa ég ekki um mig sem eitthverja sem verði að lenda einhvers staðar í sögu með öðru fólki, nú hugsa ég um lífið og flakka ekki í huganum um framtíðarsali sem hafa margir svipuð markmið og IKEA, að hafa það sirkábát auðvelt, praktískt, hreint og beint og þægilegt, hjartnæmt og gott, ekki það að það séu ekki fín markmið en nú er ég meira að hugsa á heimspekilegu nótunum um lífið, tilveruna, fólk - já og ég er líka í fríi frá pólitíkinni því hún æsir mig upp
systir mín hætti við að halda jól og núna í dag ætlar hún að halda jól, ég hef alla vega alltaf ætlað að halda jól, ég er stabílli en hún en þó er ég uppreisnargjarnari en systir mín, uppreisnir hennar eru bara í kjaftinum á henni, hún segist alltaf vera að fara að gera uppreisn, gera skurrk í málunum, en allt lognast útaf, hún hefur ekkert bardagaþrek, ekki einsog ég, sem unglingar mátti alveg sjá muninn á okkur, ég var uppreisnargjörn, systir mín var alltaf stillt og gerði það sem til var ætlast, þótt hún klæddi sig í föt sem gæfu tilefni tilað halda að þar væri byltingarforingi á ferð, hún var bara að blekkja umhverfið með því og sjálfa sig mest, hún var og er enn með vitskerrtum klæðaburði að gefa sér frí frá því að konfrontéra heiminn af alvöru því það hefur hún aldrei þorað, eða þolað, systir mín raggeitinn, sem dag einn þykist ekki ætla að halda jól og kaupa jólagjafir en er mætt daginn eftir í smárann að raða smáhlutum og skemmtilegu dóti ofan í körfur og versla sokkabuxur og sokka handa þeim turtillófunum, búin að steingleyma að í fyrradag var hún með ofnæmi fyrir bandarískri menningu hlustandi á cowboy junkies og elvis presley í dag, en hún var líka að hugsa svo mikið um fyrirbærið menninguna í gær, t.d. valdið - powerið sem menningin hefur, og að kannski það væri bara allt björk að þakka /eða kenna hin stórfenglega útrás íslenskra fyrirtækja, að menningin sé þesslegur uxi sem plægir akur einsog trúarbrögðin, sbr hvítir kallar og nunnur sem fara til afríku með krossa í farteskinu að útbýta, það sé svipað og ferðalög bandarískra jazzista um evrópu in the 50ies, svipað og breski fótboltinn, svipað og ítölsku pizzurnar, kínverski maturinn, svipað og ferðalög íslensku skákþjálfaranna til grænlands gefandi börnum skáksett og kenna þeim herskáa en friðsama og hljóðláta íþrótt sem þjálfar hugann í að hugsa leiki fram í tímann og vera útsmoginn og kænn og vænn og í staðinn fyrir að drekka sig fulla og fremja sjálfsmorð að drekka sig fulla og tefla skák í reykmettuðu lofti innandyra, á eftir þessu frum-átaki menningarlegu, stilltu og hugsjónaríku muni svo dag einn íslenska friðargæslusveitin fara þangað og hertaka landið, en líklega verða þó færeyingar fyrri tilað hertaka ísland
Monday, December 12, 2005
það er ekki einsog systir mín sé í góðu skapi þessa dagana og heimilið þeirra er á hvolfi, allt fullt af kössum og skápum, skápar og kassar, ég held að konur sem búa saman séu ekki eins góðar í að taka til og konur sem búa með körlum, hún er líka búin með þessa amerísku bók, og svo glöð sem hún var með bókina í byrjun er hún alveg æf útí bókina núna, og það kom niður á öllu og öllum í kringum hana, meira að segja gat hún ekki hlustað á ameríska tónlist, frá le tigre, til venjulegs þjóðlagapopps og bob dylans (hún er einlægur eða var einlægur aðdáandi hans) og allra nema tónlist svartra, ofnæmið náði ekki þangað, eftir lestur þessarar bókar, "sem er svo hvít," segir hún, "svo hvít, svo hvít, svo hvít, um fólk dásamlega gott fólk, um fólk sem hefur allt til alls, getur farið á hótel í honólúlú hvenær sem því dettur í hug og svo þegar einhver deyr er allt svo hræðilega sorglegt hjá því, þetta fólk þarf t.d. ekki að vinna, í marga mánuði getur það helgað sig sorginni á meðan hún rjátlar af því, en ef fólk deyr hér á Íslandi þá fær fólk frí í mesta lagi 2 daga," ætli systir mín vilji koma á sorgarorlofi einsog mæðra og feðraorlofi, mætti halda það, en hún er alveg brjáluð útí þessa góðu bók svo það kemur niður á: kærustu hennar, bandarískri tónlist - "ég hlusta ekki á neitt helv. amerískt væl og vorkunnsemi, syrgjandi kellingar og kallar", kemur niður á jólunum, "ég er hætt við að halda jól og það fær engin jólagjafir frá mér nema kærasta mín og mamma," mér systur hennar, fýlan og brjálæðin kemur niður á mér og þarmeð dætrum mínum, heimilinu þeirra, hún snertir ekki við kössunum, mömmu, aumingja mamma, vinum hennar, aumingja systir mín, hvað hún lætur bækur og bíómyndir og allt sem er í plati stjórna lífi sínu, ég finn einlæglega til með henni, þessi ameríska bók, það vildi ég að hún hefði lesið eitthvað annað en þessa amerísku bók, hvers á heil heimsálfa að gjalda, ég segi að systir mín sé fordómafull einsog allt þetta vinstri fólk nútildags og allur heimurinn einsog hann leggur sig er að farast úr fordómum,
Thursday, December 08, 2005
systir mín er búin að gleyma mér afþví hún er að lesa einhverja ameríska bók og bróðir minn er monthani, maðurinn sem ég dái af hjartans afli er fjarverandi og mamma og pabbi komu til mín eftir vinnuna þeirra í dag og mamma sá í gegnum mig án þess að segja nokkuð, á morgun er ég í fríi, þessi maður, sem ég dái svona mikið, gerir mig svo fjarhuga og losar tengslin mín við vinnuna og allt mitt líf, hann tekur mig upp með rótum og ég veit ekki hvert hann ætlar með mig, ætli hann ætli að gróðursetja mig í öðrum garði eða halda mér svona í lausu lofti, systir mín segir:
lagaðu mjólkurgraut með kanil og rjóma handa stelpunum
úff hvað hennar orð eru alltaf hryllilega gamaldags
systir mín:
á föstudögum skaltu steikja hamborgara handa stelpunum og þér og borða með þeim kartöfluflögur svona í dósum, gefðu þeim kók með að drekka en þér einn tvo bjóra en ekki fleiri fyrst þú verður alltaf svona full + þunn, en á fimmtudögum skaltu laga mjólkurgraut með kanil sultu slátri smjöri rjóma
hvað á ég að gera á laugardögum?
pizzu, fondú, eða lundir, ís í eftirrétt og 3 vídeóspólur og fyrir kvöldið: göngutúr, hreingerningar, innkaup og soduko
á ég að hlusta á systur mína eða hanga í lausu lofti?
systir góð, en á sunnudögum?
sunnudagar eru góðir í göngutúra, taflmennsku, lestur og í kvöldmat er gott að borða kjúklingarétt
sundlaugar eru líka góðar á sunnudögum
á mánudaginn skaltu steikja fisk og hafa í eftirrétt súrmjólkursúpu
en á þriðjudögum?
pylsur og kartöflumús baked beans
miðvikudögum?
eitthvað gúmmelaði í ofni, gúmmelaði með makkarónum og túnfisk og osti
systir mín haltu þá áfram að lesa þessa amerísku bók
ég er með hálsbólgu og kvef í dag, svo ég fór ekki í vinnuna, svo ég smiti nú ekki sjúklingana, fór á fætur að laga mér kaffi og hringdi í systur mína sem sagði mér að hún ætli að gefa mér teketil, te og tesíu í jólagjöf, svo er hún að hugsa um að gefa bróður kærustu sinnar disk daníels ágústar, swallowed a star, svo var hún eitthvað að segja að hana langaði að gefa pabba okkar munnhörpu, og svo var hún eitthvað að segja að hún og kærastann ætli að gefa vinafólki sínu svuntur, ég sagði henni ég myndi gefa henni nýju skáldsögu guðrúnar evu minervudóttur, ég ætlaði að láta vin minn gefa mér eintak af henni svo ég þyrfti ekki að kaupa það sjálf, ég tími ekki að hafa frek fjárútlát í gjöfina hennar í ár, ég var rosalega rausnaleg við hana í fyrra
Wednesday, December 07, 2005
systir mín er að breyta jólagjafalistanum: hún ætlar að gefa bróður okkar disk með singapore sling, syni hans disk með tónlistarmanni sem heitir sama nafni og bróðursonur okkar, þórir, og er væminn anarkisti, konu bróður okkar disk með emilíu torrini, dætrum þeirra coco rosie og eitthvad mjög hart og djúpt rokk, dætrum mínum ætlar hún að gefa emilíu torrini, og singapore sling, mér ætlar hún að gefa jólaplötuna með ellen kristjáns og kk, þið eruð hvortsemeröll lesblind nema þú systir mín og mamma, en ég gef þér bók seinna systir mín kær, segir hún systir mín, en mömmu okkar ætlar hún að gefa ljóðabók þorsteins frá hamri sem nýútkomin er, og pabba disk með skúla sverri, afþví hún hitti þann virta tónlistarmann um daginn, og minnti hann hana á tímalausan gyðing, einnig sem hann bauð af sér góðan þokka, kærustu sinni ætlar hún að gefa kápu og sjálfri sér flugmiða til new york, alla pakkana ætlar hún að pakka inní svart og gyllt, svo langar hana að gefa einhverjum plakat af sofiu loren, kannskif frænku okkar sem heitir einmitt soffía
Sunday, December 04, 2005
við vorum að spá í eitt systurnar, eða hún var að tala um það og ég er sammála henni eins sjaldgæft og það er, að íslenskir karlmenn eru mjög langt á eftir í tísku, því nú fyrir meira en þremur árum komust líkamshár aftur í tísku útí heimi svo karlmenn hættu að raka þau af, af bakinu, bringunni, fótleggjunum, kringum kynfærin, en kallarnir á íslandi eru sem aldrei fyrr í vaxi, það er hápúnktur vaxsins hjá íslenskum köllum, einsog sjá með hjá mörgum íslenskum köllum á netinu, en þegar það er fyrir löngu úrelt annars staðar, við vorkennum íslenskum karlmönnum að vera svona aftarlega á merinni og systir mín vorkennir líka nærfatnabúðum á íslandi yfir því að hafa fordóma fyrir kellingalegum nærbuxum
ég hef ákveðið að skvíla jólagjafalista systur minnar:
í jólagjöf ætlar systir mín að gefa konu bróður okkar yosoy eftir guðrúnu evu minervudóttur og bróður sínum í frostinu eftir jón atla jónasson, dóttur minni ætlar hún að gefa bókina dætur hafsins eftir súsönnu svavarsdóttur, mömmu kærustu sinnar hefur hún hug á að gefa huldukonur í íslenskri myndlist
Saturday, December 03, 2005
mamma og mágkona mín og systir eru byrjaðar að baka fyrir jólin en ég er enn saklaus af jólabakstrinum, systir mín hermir eftir mömmu, eltir hana, um leið og mamma bakar franska súkkulaðiköku fer hún og bakar líka, mamma er fyrirmynd systur minnar í einu og öllu, mamma var að laga til áðan og þá datt fóturinn af sjónvarpsborðinu svo hún greip sjónvarpið áður en það datt ofan á hana, þá sagði pabbi, æj æj, ég hef alltof mikið að gera fyrir þetta, og þegar systir mín frétti þetta vildi hún fá að taka pabba í gegn, en þá sagði mamma að hann hefði ekki tíma fyrir það svo systir mín ætlar að taka pabba í gegn seinna, systir mín bað mömmu að hætta taka til, örugglega til þess að hún þyrfti ekki að taka til hjá sér því hún hermir allt eftir mömmu, en ég veit annars að hún er með einhverja tilraunastarfsemi að fara út í göngutúr eldsnemma á morgnanna en svo í þannig göngutúr í morgun varð hún svo hrædd við blaðburðarkonu að hún hljóp aftur inn og fór að hugsa um öll handahófskenndu morðin sem framin væru eldsnemma á morgnanna,
systir mín ætlar að gefa pabba myndin af pabba eftir gerði kristný í jólagjöf og mér ætlar hún að gefa ráðskona óskast í sveit eftir snjólaugu bragadóttur og mömmu ætlar hún að gefa í fylgd með fullorðnum eftir steinunni ólínu og bróður mínum huldukonur í íslenskri myndlist eftir hrafnhildi schram, en ég veit ekki afhverju ég er að kjafta frá, ég er bara smá fúl útí hana, já, almanak þjóðvinafélagsins gefur hún pabba líka, svo ég geti uppljóstrað öllu og bróður mínum að auki bókina kommúnismi, og mér líka bókina um íslensku fegurðardrottningurnar, og svo gefur hún mömmu örugglega líka kjarvalsbókina, hún var eitthvað að tala um það, ég held hún ætli að gefa kærustu sinni kjól og saumavél
- nudd
Úr nuddi kem ég með höfuðverk. Ég vinn of mikið. Allar aukavaktirnar sem búskapur minn er háður. Kannski er betra að vinna mikið og hugsa minna og fara ekki í nudd. Allir sem ég þekki eru ævir útí ástandið á Íslandi en ég held að það mætti heyrast meir í fólki opinberlega. Á opinberum vettvangi. Fólki sem talar íslenskt talmál. Því fólk talar þetta við hvort annað, í eldhúsum og útá gangi í göngutúr þarsem það er öruggt um engar eftirlitsmyndavélar, eða a.m.k. hætti ég mér ekki niður í Austurstræti að ræða óánægju mína með pólítísk afskipti af heilbrigðiskerfinu. Einsog því að lyf sem sjúklingar þurfa fást ekki í apótekum og heldur ekki hjá heildsölunum sem flytja þau inn. Finnst kannski heildsölunum leiðinlegt að flytja inn lyf? Finnst alþingismönnum leiðinlegt og erfitt að hlusta á fólk annars staðar en í þinghúsinu? T.d. á stöðum þarsem eru ekki eftirlitsmyndavélar eða sjónvarpsfólk að taka það upp? Mörgum sem ég þekki finnst þeir eiga heima á geðveikrahæli í þessu landi og líka í fangelsi. Rosastóru fangelsi. Þar er ekki hlustað á vilja fólks því fólk hefur ekki leyfi tilað vera með vilja þareð hluti af refsingunni í fangelsum er að taka af fólki viljann. Erum við frjáls? Ég ætla að velta því fyrir mér um helgina. En kannski á maður ekki að velta svona spurningum fyrir sér um helgar, þá á maður að taka til í íbúðinni, setja hreint á rúmin, drekka svo bjór og sofa hjá, það er að segja ef maður er:
frjór
því samkvæmt Gústa Nielsar er kynlíf einungis fyrir frjósamt fólk.
Friday, December 02, 2005
um pistils Gústafs Níelssonar í Mbl í gær
Morgunblaðið birti pistil Gústafs Níelssonar í gær, og hét hann því fallega og göfuga nafni:
Að elska sitt eigið kyn
Þar telur Gústaf að það samræmist ekki lögmálunum sem Guð setti okkur mannfólkinu á jörðinni að elska sitt eigið kyn. Og einsog fleiri góðir menn virðist hann þekkja vilja Guðs betur en ég. Ég hélt að maður sýndi Guð þá virðingu að gera Guði ekki upp skoðanir:
Heyrðu Guð, ert þú meira fyrir homma en konukalla?
Heyrðu Guð, ert þú meira fyrir epli en appelsínur?
Heyrðu góði Guð, heldur þú meira með F.H. en Haukum?
Því Guð treystir okkur fyrir stórum og smáum mál og ansar því ekki ef draga á Guð inní svona flokkadrætti.
Á ég að spurja Guð að e.f.:
Heyrðu Guð, á ég að fara á klósettið núna?
Nei, auðvitað ekki, Guð treystir mér tilað vita það sjálf.
Guð treystir mér fyrir stórum hluta af lífi mínu sem Guð og mamma og pabbi gáfu mér og fleiri hafa komið við sögu tilað auðga það og veita lífi mínu brautargengi og góða og skemmtilegra daga.
En svo eru önnur mál sem eru of stór fyrir mig og þá verð ég að biðja um handleiðslu frá Guði. T.d. :
Guð, viltu hjálpa mér í að taka ákvörðun, viltu hjálpa mér þegar ég er svona ótrúlega sorgmædd einsog ég verð stundum, Guð viltu koma vitinu fyrir þessa ríkisstjórn sem hefur ollið óhugnanlegu jarðraski við Kárahnjúka...
En ég get ekki hringt í Guð og spurt:
Guð, hatar þú homma?
Og afhverju ætti Guð að hata homma?
Afþví tveir karlkynslíkamar sem elskast geta ekki búið til börn? Er það útafþví sem Guð ætti að hata homma?Er kynlíf um að búa til börn? Er kynlíf barnaframleiðsla? Verksmiðja. Production of children? Ó, ég hélt að kynlíf væri ýmislegt fleira og getnaður væri lítil hluti þess. Ég veit t.d. sem starfsmaður í heilbrigðisgeira að það kynlíf sem verður að fara fram og getnaður megi verða er aðeins stundað í 15% tilvika af öllu því kynlífi sem fram fer í heiminum. SVona eru nú tölfræðirnar og þær ljúga ekki. ÞEtta var rannsókn sem gerð var á fólki sem átti stutt eftir og hafði engan hag af því að ljúga. Fólk sem á stutt eftir segir oft sannleikan - a.m.k. þorir það því meir en hinir. Okkar reynsla í heilbrigðisgeiranum. Kannski ég segi að Guð segi það líka Guðs reynslu eða að þannig hafi Guð hugsað sér einmitt að útbúa okkur... MEira um Gústaf eða um skoðanir hans:
Hvers vegna vill Guð þá aðeins þannig kynlíf sem veldur getnaði, Gústaf?
Vill Guð stanslaustar barneignir í hvert sinn að tvær manneskjur leggjast saman og elskast? Eða í tíunda hvert sinn? Ég held ekki - ef Guð vildi það t.d. þá hefði Guð búið líkama konunnar þannig að hún gæti eignast barn til áttræðs t.d. og Guð hefði ábyggilega gert jörðina þannig úr garði gerða að hún væri mjög hentug fyrir fjöldann allan af börnum. Að það væri auðveldara fyrir börn að hugsa um sig sjálf, nálgast mat á eigin vegum, og þau væru betur sjálfbjarga í náttúrunni, einsog t.d. litlar mýs og kanínur eru.
En Guð bjó til ákveðinn mekkanisma svo konur eru frjóar í c.a. 20 ár ævi sinnar, sem er aðeins c.a. einn fjórði af ævi konu sem verður áttræð.
Og Guð gæti hafa búið til þessa ásthrifningu sem verður oft á tíðum á milli fólks af sama kyni afþví að Guð var með því móti að finna upp ákveðna tegund af kynlífi milli fullorðins fólks sem EKKI veldur frjóvgun og getnaði, sem er til þess gert aðeins að auðga andann og búa til áhyggjulausar sælustundir unaðar og frelsis tveggja einstaklinga í faðmi hvors annars. Kannski var það hugmynd Guðs með þessu sköpunarverki:
Ástum fólks af sama kyni. Að elska sitt eigið kyn. Að búa til kynlíf sem þyrfti ekki getnaðarvarnir.
En það var líka fyrir þá tíð að menn og konur fóru að sofa hjá hundum og öpum, og ná sér í að búa til ýmisskonar kynsjúkdóma, sem aftur hafa kallað á nauðsynina á e.k. hlýfðarfatnaði einsog verjum, smokknum.
En við tökum líka afleiðingar gerða okkar við mannfólkið, því við erum ekki ábyrgðarlaus, við kunnum að passa okkur sjálf líka og við leitum uppi aðferðir tilað lækna okkur þegar við veikjumst. Kynsjúkdómar eru eðlilegasti hlutur einsog kvef, og aðrar umgangspestir.
Og við smitumst ekki aðeins af sjúkdómum, því hver segir okkur að græðgin sé ekki smitandi, þunglyndið, fýlan, leiðindin og depurðin?
Að minnsta kosti ég verð döpur ef sit ég við hliðiná döprum manni - og hvað er að því? Það er bara dásamlegt að fólk hafi þó einhver áhrif hvert á annað á meðan að þeir sem fara með völdin hlusta t.d. ekki mikið á það. Ég vil að annað fólk setji mark á líf mitt.
Gústaf Níelsson skrifar í Morgunblaðið fyrsta desember:
"Leiðtogahlutverk er jafnan vandasamara, en hlutverk vikapilts."
Og ég get ekki verið meira ósammála Gústafi.
Gústaf skrifarí Morgunblaðið fyrsta desember:
"Er ekki hámark sjálfselskunnar að leggja ást á sitt eigið kyn, og slík ást getur aldrei borið ávöxt."
Ég spyr Gústaf: Hvenær hefur það verið sjálfselska að elska náunga sinn?
Og annar póll: vinur systur minnar segir: ég er samkynhneigður þegar ég stunda ást með sjálfum mér einsog t.a.m. svo sjaldan sem ég geri sjálfsfróun?
Gústaf skrifar:
"...en stjórnarandstaðan mun taka þann kaleik frá henni og aðstoða dyggilega við það óþurftarverk, ásamt mörgu innan kirkjufólki, sem nú leggur nótt við dag, svo finna megi fáránleikanum stoð í kenningu Krists...."
Kærleiksboðskapur Krists einsog ég les hann skiptir ekki fólki í flokka og hópa og aðskilur einn frá öðrum, heldur finnst mér kærleiksboðskapur Krists vilja sameina okkur og kenna okkur aðrar hugmyndir - sem því miður hafa aldrei náð neinu brautargengi í heiminum - í að bregðast við í lífinu, einsog t.d. með fyrirgefningu í stað haturs, og hefndar. Viðbrögðin okkar í lífinu eru afar oft alls ekki í samræmi við kærleiksboðskap Krists og þessi pistill Gústafs gæti ekki verið fjarri kærleiksboðskap Krists er hann dregur svona fólk í dilka og hatast við ákveðna tegund af meðbræðrum sínum og systrum.
Gústaf, ég vil sendi þér kærleika og fyrirgef þér reiðina sem þú virðist bera í brjósti þínu gagnvart fólki, einsog t.d. systur minni, sem elskar m.a. sitt eigið kyn.
Heyrðu Guð, er það rétt sem Gústaf segir að þér líkar ekki við ástir á milli tveggja kvenna og karla?
- risar....
Ég nefndi áðan risa og hér er þá saga um átök bónda og skessu - kíktu á söguna
Þegar landnemar komu til Íslands fyrir 1100 árum voru hér fyrir vættir, risar og skessur, sem höfðu numið landið á undan landnemunum frá Norge, skessurnar og huldufólkið er The Natives of Iceland.
unglingapartý
á þessum föstudegi til framar verður mér hugsað til síðustu helgar þegar húsið mitt fylltist af 17 ára krökkum en inní veisluna komu svo rúmlega tvítugir stórir kallar, (sem þau hin sautján ára kölluðu "þessa fertugu" - og vinkona dóttir minnar sagði svo réttilega:
- hafa þessir fertugu kallar ekkert betra við líf sitt að gera en fara í partý hjá 17 ára stelpum?
þessi setningu ættu þau að birta hjá mogganum og fréttablaðinu ókey
svigi lokast:
en nefnilega: rúmlega tvítugir kallar /fertugir, einsog þau kölluðu þá, komu óboðnir í boðið á limmósínu hvítri að lit, úr nágrannasveitafélagi skilst mér, og einn þóttist vera frændi einhvers partýhans, sem ég þekki ekki, en systir mín sagði að væri einn af þessum kallarnirpunkturis, en við ég og systir mín vorum sóttar þarsem við sátum með vinum því ég ætlaði að gefa krökkunum frið með sitt partý, þegar partýið var svona hertekið af þessum fertugu, og þangað fórum við, það er að segja hingað, - heim - , og tók nú nokkra stund að koma þessum stóru miklu mönnum sem létu öllum illum látum, voru hávaðasamir og - einsog systir mín heyrði af tali þeirra: "ætluðu að renna sér á þessa og hina stelpuna, ljóshærða, dökkhærða..." voru með bítti á stelpunum sín á milli, en með veigamikilli hjálp og skipulagningu komst að færa þá burt, þó enginn leigubíll væri nógu stór, að þeirra sögn, Þ E I R vildu S T Ó R A N leigubíl, komust ekki uppí litla, sem komu hver á eftir öðrum að sækja þá en þeir hundsuðu þá og svo yfirgangssöm var nærvera þeirra að leigubílstjórarnir snéru mótmælalaust við og fóru án þess að innheimta startgjaldið, einsog ég hef alltaf lent í ef ég get ekki notað leigubílinn sem ég panta, þ.e.s.a.s. ef óvart kemur eitthvað uppá sem verður þess valdandi að ég get ekki tekið bílinn sem ég pantaði, en það þurfa ekki þessir óróaseggir sem hafa ekkert betra við sinn tíma að gera en mæta í veislu hjá 17 ára stelpum, en loks kom - S T Ó R og B R E I Ð U R leigubíll sem þeim var þóknanlegur að troðast í, þetta voru einsog risar að troða sér inní partý hjá álfum og huldufólki má segja um þetta mál, nú er maður ekki lengur maður með mönnum nema ef maður er risi, en ég vona svo sannarlega að þessu risatímabili ljúki fljótt, að álfarnir fái að vera með, að þeir plássfreku og mikilsmennskubrjálæðu fari að slaka á og horfa í kringum sig eða niður fyrir sig réttara sagt -
ætli leigubílstjórar þori aðeins að innheimta startgjald hjá lágvöxnu óöruggu feimnu fólki sem öskrar ekki þegar það talar?
- hafa þessir fertugu kallar ekkert betra við líf sitt að gera en fara í partý hjá 17 ára stelpum?
þessi setningu ættu þau að birta hjá mogganum og fréttablaðinu ókey
svigi lokast:
en nefnilega: rúmlega tvítugir kallar /fertugir, einsog þau kölluðu þá, komu óboðnir í boðið á limmósínu hvítri að lit, úr nágrannasveitafélagi skilst mér, og einn þóttist vera frændi einhvers partýhans, sem ég þekki ekki, en systir mín sagði að væri einn af þessum kallarnirpunkturis, en við ég og systir mín vorum sóttar þarsem við sátum með vinum því ég ætlaði að gefa krökkunum frið með sitt partý, þegar partýið var svona hertekið af þessum fertugu, og þangað fórum við, það er að segja hingað, - heim - , og tók nú nokkra stund að koma þessum stóru miklu mönnum sem létu öllum illum látum, voru hávaðasamir og - einsog systir mín heyrði af tali þeirra: "ætluðu að renna sér á þessa og hina stelpuna, ljóshærða, dökkhærða..." voru með bítti á stelpunum sín á milli, en með veigamikilli hjálp og skipulagningu komst að færa þá burt, þó enginn leigubíll væri nógu stór, að þeirra sögn, Þ E I R vildu S T Ó R A N leigubíl, komust ekki uppí litla, sem komu hver á eftir öðrum að sækja þá en þeir hundsuðu þá og svo yfirgangssöm var nærvera þeirra að leigubílstjórarnir snéru mótmælalaust við og fóru án þess að innheimta startgjaldið, einsog ég hef alltaf lent í ef ég get ekki notað leigubílinn sem ég panta, þ.e.s.a.s. ef óvart kemur eitthvað uppá sem verður þess valdandi að ég get ekki tekið bílinn sem ég pantaði, en það þurfa ekki þessir óróaseggir sem hafa ekkert betra við sinn tíma að gera en mæta í veislu hjá 17 ára stelpum, en loks kom - S T Ó R og B R E I Ð U R leigubíll sem þeim var þóknanlegur að troðast í, þetta voru einsog risar að troða sér inní partý hjá álfum og huldufólki má segja um þetta mál, nú er maður ekki lengur maður með mönnum nema ef maður er risi, en ég vona svo sannarlega að þessu risatímabili ljúki fljótt, að álfarnir fái að vera með, að þeir plássfreku og mikilsmennskubrjálæðu fari að slaka á og horfa í kringum sig eða niður fyrir sig réttara sagt -
ætli leigubílstjórar þori aðeins að innheimta startgjald hjá lágvöxnu óöruggu feimnu fólki sem öskrar ekki þegar það talar?
ég er alveg til í að klikka ekki
ég er alveg til í að klikka ekki
en það er ekki langt síðan ég var til í að klikka og ekki til í að klikka ekki
Monday, November 21, 2005
action
ég saup seyðið af föstudagskvöldinu alla helgina því ég var þunn, bæði á laugardag og sunnudag, en ég drakk nokkra bjóra í afmælinu og fór svo á rex með vinkonu minni og gekk svo heim, undir stjörnuprýddum himni, um nóttina, það var svoldið draugalegt að ganga heim þessa nótt, systir mín keyrði mig svo í gær að ná í bílinn sem var búin að vera þarna síðan á föstudagskvöldið, systir mín var ansi stælótt í bílnum, og stuttur í henni fjúsorinn - nú verð ég að vinna mikið á næstu dögum
Saturday, November 19, 2005
- frhld - lördag middag -
...
það var einhver að segja að þegar fólk hittist kona og kall gagnkynhneigð þá séu þau til í strax sem ókunnugt fólk að eiga saman nótt eða kvöldstund og samfagna hvort öðru án landamæra án hlýfðarbúnaðs án kynsjúkdóma- og getnaðarvarna, en hver manneskja ber ábyrgð á sjálfri sér og getur ekki farið að saka hina um eitthvað 9 mánuðum seinna (eða 6 ef um t.d. hiv-smit sé að ræða), ókey, lífið er villt en það er líka stillt, og ég sem starfskona í heilbrigðisgeiranum veit hvað við erum viðkvæm og berskjölduð og að aðgát skal höfð í nærveru sálar og aðgát skal höfð í nærveru við sjálfan sig, þannig að þegar kona og kall hittast - sem systir mín vill meina að geti ekki verið á jafninga basis, en burtu með rövlið í henni for a sec - framandi fólk, í fyrsta sinn að hittast og kyssast - þá er betra og skynsamt að brúa bilið á milli hvors annars (það er alltaf bil á milli, samruni er hending) með smokknum - þetta segi ég sem starfskona í heilbrigðisgeiranum og líka sem margt margt fleira - bara núna í þessum orðum, heyri ég í sjúkrabíl... eða löggu... hætturnar, hætturnar, olræt - hér er meira um þetta sem mig langar tilað tala um
...
og þetta eru engin feimnismál (eða jú)
...
það var einhver að segja að þegar fólk hittist kona og kall gagnkynhneigð þá séu þau til í strax sem ókunnugt fólk að eiga saman nótt eða kvöldstund og samfagna hvort öðru án landamæra án hlýfðarbúnaðs án kynsjúkdóma- og getnaðarvarna, en hver manneskja ber ábyrgð á sjálfri sér og getur ekki farið að saka hina um eitthvað 9 mánuðum seinna (eða 6 ef um t.d. hiv-smit sé að ræða), ókey, lífið er villt en það er líka stillt, og ég sem starfskona í heilbrigðisgeiranum veit hvað við erum viðkvæm og berskjölduð og að aðgát skal höfð í nærveru sálar og aðgát skal höfð í nærveru við sjálfan sig, þannig að þegar kona og kall hittast - sem systir mín vill meina að geti ekki verið á jafninga basis, en burtu með rövlið í henni for a sec - framandi fólk, í fyrsta sinn að hittast og kyssast - þá er betra og skynsamt að brúa bilið á milli hvors annars (það er alltaf bil á milli, samruni er hending) með smokknum - þetta segi ég sem starfskona í heilbrigðisgeiranum og líka sem margt margt fleira - bara núna í þessum orðum, heyri ég í sjúkrabíl... eða löggu... hætturnar, hætturnar, olræt - hér er meira um þetta sem mig langar tilað tala um
...
og þetta eru engin feimnismál (eða jú)
...
lördag morgen
það er gott veður í dag, ég er meira fyrir gott veður en vont, ég þoli ekki snjó, frá því ég var lítil, ekkert fyrir sleðaveður og snjókalla og kellingar
en afþví ég var að tala við systur mína í gærkvöldi
- á leiðinni var ég á bílnum í hafnarfjörð úr partýi a í partý b -
um öruggt kynlíf og kynsjúkdóma,
hún veit margt um þetta tvennt, gamli vitringurinn stóra sys,
þá bendi ég á þessa síðu til frekari útskýringa
því við sem erum ekki fædd í gær erum stundum fædd í gær
og einsog systir mín segir:
hver einstaklingur
karlkyns/kvenkyns
er jómfrú alla ævi
hm, þrátt fyrir svartsýnina er alltaf einhverja smá bjartsýni að finna í systu
en afþví ég var að tala við systur mína í gærkvöldi
- á leiðinni var ég á bílnum í hafnarfjörð úr partýi a í partý b -
um öruggt kynlíf og kynsjúkdóma,
hún veit margt um þetta tvennt, gamli vitringurinn stóra sys,
þá bendi ég á þessa síðu til frekari útskýringa
því við sem erum ekki fædd í gær erum stundum fædd í gær
og einsog systir mín segir:
hver einstaklingur
karlkyns/kvenkyns
er jómfrú alla ævi
hm, þrátt fyrir svartsýnina er alltaf einhverja smá bjartsýni að finna í systu
Friday, November 18, 2005
mynd af jörðinni okkar í bókabúð

systir mín og vinkonur hennar segja að konur í heimi vorum séu í sömu stöðu og fyrir 100 árum nema að vera sumar og margar kannski í okkar heimshluta með meiri peninga í vasanum, en leikreglurnar séu þær sömu og þær hafi karlmenn smíðað, og hvergi séu í gildi aðrar leikreglur en þeirra, þess vegna segja þær, að konur sem þurfi að díla við karlmenn á atvinnulegum basis og tilfinningalegum basis, geti aldrei treyst þeim fyrir sjálfstæði sínu, einlægnlega, og að einlægni sé ekki til á milli kynjanna á meðan staða konunnar er þessi, - algjörlega undir karlmönnum um allt allt allt - , þær eru harðar á þessu, mjög harðar á þessu, og svartsýnar og lýst ekkert á blikuna, þetta frelsi sem talað er um, sé frelsi tilað eyða peningunum, en reyndar sé mjög takmarkað sem hægt er að gera við peningana: fara útí búð og kaupa geislaspilara... fara útí búð og kaupa hárblásara... frelsið felist í dálitlu búðarrápi á kvöldin og um helgar, utan vinnutímans, annað sé það ekki
fuck the system sagði ég er ég var unglingur og kannski ég segi það enn
jólatré í bókabúð

varúð: dótabúð í búningi bókabúðar
í þessari bókabúð þarsem sæta myndin var tekin fást fáar bækur en mikið af dóti sem gaman er að skoða og fingurnir mínir elska að leika sér við en ég veit ekki, kannski heitir iða ekki bókabúð, kannski heitir hún Gjafavöruverslun, því ég leitaði í bókahillunum og fann fátt af bókum sem skrifaðar hafa verið á þessu landi síðustu ár, kannski finnst þessari bókabúð leiðinlegt að vera bókabúð og skemmtilegra að vera dótabúð og vill ekki vera bókabúð og kannski var hún aldrei bókabúð in the first place og ég misskildi eitthvað í millitíðinni, en ef fólk leitar að bókum ætti það að fara annað að minnsta kosti og leitið og þér munuð finna, þetta er ágæt dótabúð ef maður veit ekki hvers er leitað
Monday, November 14, 2005
- : -
nýr dagur
gott mál
um helgina fór ég smástund á rex með vinkonu minni sem bað mig að koma með sér þangað
þar sá ég quentin tarantino
systir mín segir að maðurinn sé í guðatölu á íslandi og það leit þannig út á staðnum að hann væri það
þá kom guð einn og heimsótti fólkið í reykjavík
nú svo var ég á kvöldvakt í gær
og í dag er nýr dagur
fínt mál
systir mín segir að quentin hafi ekki endurnýjað kvikmyndina en hann sé femenisti einsog arnaldur indriðason og dan brown
Friday, November 11, 2005
- margt veit ég ekki -
margt veit ég ekki, ég veit ekki hvernig á að vera mamma ef ég hugsa útí það, og þegar ég leyfi tilfinningum mínum að ráða ferðinni, einsog verið er að ráðleggja manni í nútímanum, lát hjartað ráða för, þá missi ég stundum tökin - ef ég hafði einhver tök - tilfinningar mínar eru svo sterkar og mikilfenglegar, síðan ég var lítil, síðan ég fæddist, hafa tilfinningar mínar verið stærri en ég sjálf, þær ná utan um mig, en inní mér er líka ein lítil mús sem heldur að enginn ætli að gefa henni að borða, enginn ætli að elska hana, enginn ætli að sinna henni, og þessi mús verður ofsafengin þegar hún fær hugboð um eitthvað svoleiðis, ég sjálf sinni þessari mús ágætlega, en ekki alltaf heimurinn, hún vill sjást en hún er svo lítil, að fólk sér hana ekki, kannski, enginn skal segja mér að ég verði að pakka tilfinningunum saman, þrýsta þeim niður, troða þeim ofan í holu, enginn, enginn, enginn, og systir mín er sammála mér, tilfinningarnar ná utan um mig og verja mig líka um leið og þær gefa mér allt sem er þess virði að lifa fyrir, líka það að vera mamma - sem er eitt furðulegasta og margbrotnasta hlutverk sem sögur fara af - ó ó - ég tala í hringi og það er dásamlega skemmtilegt -
Tuesday, November 08, 2005
- p.s. -
kannski betra að kalla félagið svefndrottningarnar eða sofandi drottningar ef þetta heldur svona áfram, ég skil ekki:
hver á táfýluna undir borðinu þarsem ég sit?
er þetta táfýla systur minnar eða einhvers sem hingað kemur aldrei inn?
systir mín er þó táfýlulausasta manneskja íslands svo hver á hana þá?
hver á þessa táfýlu? lýst er eftir táfýlueiganda táfýlunnar undir skrifborðinu mínu.
- tilkynning -
lýst er eftir meðlimunum í hinum sofandalega félagsskap sem aldrei heldur fundi, riddaralegu drottningunum, athugið, ef áhugi er á að endurvekja félag sem aldrei fór í gang en dreymt var um að setja á stofn áður en búið var að klippa laufin af trjánum etc hafið samband
- lykill -
ég var á morgunvakt í dag og hringdi í systur mína klukkan tíu í morgun, röddin hennar ansi syfjuleg, en hún vildi ekki meina að hún væri nývöknuð, erindi mitt var að spyrja hana útí tígul drottninguna í tarot spilum, en hún sagðist ekkert vita um tarot, hún lýgur því einsog hún er löng til, hún sagðist ekki eiga tarot, hafa átt tarot, hafa gefið þau, svo töluðum við eitthvað, ég reyndi aftur að fá hana tilað lýsa fyrir mér tíguldrottningunni í tarot, hún sagði hún væri bara góð, fín drottning, ekkert útá hana að setja, hún vissi ekkert um tarot, þá spurði ég hana hverjum hún hefði gefið spilin, hún sagði nafn vinkonu sinnar, ég sagði að ég vildi að hún hefði gefið mér þau, hún sagðist líka hafa viljað það, ég veit ekki hvort hún meinti neitt með því, svo spurði ég hana enn aftur um tíguldrottninguna, hún sagði hún væri góð, einsog allar drottningarnar, svo sagðist hún vera í miðjunni á einhverju sem hún væri að gera, og við kvöddumst, núna veit ég fyrir víst að hjá henni eru pípulagningamaður og lærlingur hans, sá er gamall bekkjabróðir hennar, þeir gera við vaskinn í eldhúsinu, vaskinn inná baði, og komið hefur í ljós að þvottavélin þeirra er mikið biluð, ég vildi að systir mín gæfi mér lykilinn að lífsráðgátunni, ég veit að hún á hann ekki, en ég veit að hún er manneskja tilað finna hann og rétta mér hann, einhvern morguninn
ég elska svona veður einsog er núna, hlýtt, rigningin búin, dálítil birta í skýjunum, stillt og bráðum kemur kvöld
Monday, November 07, 2005
- svefn -
Líf í hjúkrunarfræðibúning er ekki ósvipað lífi balletdansara því agi og sjálfsagi eru frumskilyrði starfsins, það er ekki hægt að vera hálf sofandi á vakt. Systir mín segir að ég sé heppin með það hvað ég sé kvöldsvæf, einsog mamma okkar er, og systir mín varð seinna, en hún var ekki kvöldsvæf sem barn, einsog ég, því ef ég væri ekki kvöldsvæf myndi ég oftar en ekki mæta ósofin á vakt og það leyfist ekki hjúkrunarfólki og balletdönsurum. Veikindi boða ekki komu sína fyrirfram einsog margir gestir gera. Ég efast nú um að kennarar geti verið hálf sofandi í vinnunni, eða voru annars syfjulegustu kennararnir alltaf vinsælustu og bestu kennararnir í skólunum þegar ég var lítil? Jú, ég held það. Það hangir svefn yfir mörgum fræðigreinum og pabbi minn var vanur að ráðleggja mér að leggja mig á bókasöfnum. Gjaldkerar í bönkum mega vel vera hálf sofandi og slappir því yfir þeim hangir myndavél sem recordar hugsanleg mistök og ekki eru það mistök uppá líf og dauða sem gjaldkeri í banka gerir? Leigubílstjórar mega helst ekki vera ósofnir, að sofna við stýrið getur hætt lífi og limum annarra í hættu. Kokkar gætu eitrað matinn. Nei, auðvitað hugsar maður um svefn á mánudegi þó mánudagar séu ekkert endilega mánudagar í lífi hjúkku, því við vinnum á öllum dögum, allir dagar heita sama nafni í augum sjúkdómanna. Guð gaf þeim þó ekki frí á sunnudögum, hvíldardaginn mikla, eða laugardögum einsog sumir taka, og oftar en ekki er mikið að gera þá, hjá okkur. Það er nefnilega oft þegar fólk fer að slappa af að þá gerist hvellurinn. Að maður tali nú ekki um örtröðina sem oft myndast á Slysó á sunnudagsmorgnum, biðjiði fyrir ykkur. Systir mín er með bilaða þvottavél eða bilað vatnsrennsli og henti þvottinum í okkur í fyrradag. Ég hengdi uppúr vélinni í morgun áður en ég fór á vakt m.a. föt úr húsinu hennar. Hún á nú sæmilegustu föt greyið þó ég mundi aldrei klæða mig svona einsog hún gerir. Eldri dóttir mín er nýbúin að láta plokka á sér augun og fara í augnlitun, það er mjög flott, og yngri dóttir mín var fögur einsog prinsessa í Þúsund og ein nótt þegar ég horfði á hana í gær. Systir mín sagði að ég væri svo sæt í gær að það munaði mjóu hún reyndi við mig. Hún var þá líka ekki alveg með raunveruleikatengsl, búin að sjá 13 þætti af einhverji lesbíuframhaldsseríu frá Bandaríkjunum. Það eru nú allir meira og minna gay þar. En kannski ekki allir þó en það liggur við. Ég hef skemmt mér vel á síðustu vikum og ég hef náð góðu jafnvægi í öllu sem ég sinni, starfinu, heimilinu, stúlkunum, frítímanum, draumunum, en það tekur á hvað ég þarf að spara mikið en systir mín segir að hún þekki enga með jafnmikla og fína hæfileika í peningamálum og ég, hún segir að það fylgi nafninu, sem ég gef ekki upp, ef ég gef það upp og margir læsu síðuna, sem fáir gera, mundi fólk flýta sér að skíra dætur sínar þessu nafni, nema hvað, að er kannski mörgum alveg sama hvort dætrum þeirra farnist vel í fjármálunum sínum? Ég veit það ekki, en systir mín segir það, að fólki sé alveg sama, að fólk skíri t.d. dætur sínar nískulegum og væmnum nöfnum einsog Ósk, Ögn, Dögg, Von, Nögl, Hörn, Sína, Ína, Eir, Æsa, Sísí, Rán, Rún, Sóla, Bíbí, og spara prentsvertuna í símaskránum og blekið í pennunum þeirra, en ég held þó að mörg þessara nafna sem hún tönnlast á færi einmitt mikla og óþrjótandi gæfu. En þá segir systir mín: hvaða gæfu er verið að tala um? Hún sem er kristin trúa er eitthvað svartsýn þessa dagana einsog mamma okkar líka, allt í lagi þá, hún um það, þær um það. Systir, ef þú lest þennan pistil þá mundu eftir að ná í þvottinn heima hjá mér því þar hangir hann ekki til eilífðar -
p.s. rithöfundar sækja sér efnivið í svefnskógana en systir mín hefur sagt mér að best sé að vera glaðvakandi þegar starfað er að skáldskap - starfað að skáldskap, hvernig er hægt að starfa að skáldskap, skáldskapurinn er ekki vinna, finnst mér, og ég veit ekki hvort það sé alveg rétt hjá henni þetta með að geta heldur ekki verið syfjaður við skrifborð skáldsins, æj, ég nenni ekki að ræða þetta
Subscribe to:
Posts (Atom)